Eimreiðin - 01.01.1900, Blaðsíða 76
76
gullsmiðs, einloftað, og þar á bak við snoturt smíðahús, sem Er-
lendur hefur bygt sér; þá er hátt hús tvíloftað, bygt af Brynjúlfi
Oddssyni bókbindara og skáldi, og þar andaðist hann; er húsið
nú eign Porsteins Gunnarssonar lögreglumanns og býr hann þar;
þá er hús Daníels Símonarsonar söðlasmiðs, bygt afHelga snikk-
ara. gamla, föður þeirra Helga og Jónasar organista; þar var Valdi-
mar og þar fæddist »Fjallkonan«. Pá er hús Helga Helgasonar
kaupmanns, söngmeistara og snikkara, tvíloftað og bygt af honum
sjálfum; það er eitt af hinum fáu húsum hér, sem er með nokkr-
um byggingarstíl: tvær smábustir að framan og súlur niður úr;
þar býr Helgi. Par gagnvart er annað hús og minna, sem Helgi
hefur einnig bygt og á; þar bjó frú Havstein og frú Christiansen
amtmannsekkjur, hvor eftir aðra, en nú býr þar frú Thomsen,
ékkja Gríms Thomsens. Þá er hús þar næst, sem Ben. Gröndal
lét byggja, einloftað og með háu risi, en vel vandað; þar bjó hann
atta ár, en þá keypti Jón Jensson yfirdómari húsið, og síðan frú
Jónassen, ekkja Theódórs amtmanns. Par gagnvart er hús Por-
steins Guðmundssonar verzlunarmanns, einloftað; þar næst er hús
eitt, er Árni nokkur snikkari bygði, en síðan varð það eign Ás-
mundar Sveinssonar og lét hann byggja ofan á það og gera það
tvíloftað með svölum á eða framskoti; eftir hann fékk Sighvatur
Bjarnason bankabókari húsið og býr hann þar nú. IJá eru þar
næst tvö hús bygð á klettum eins og hræfuglahreiður, en.þó snot-
ur; í öðru þeirra var Sigurður Vigfússon forni og þar mun hann
hafa andast; og þar næst er hinn frægi spítali Reykjavíkur, sem
kvað vera orðinn töluvert á eftir tímanum, en ekki dugir um að
tala; spítalinn er raunar tvíloftaður, en annars ómerkilegur að bygg-
ingu utan að sjá, engu til kostað að láta sjást, að hann sé opin-
ber bygging og ekkert í kring nema lélegur hlaðvarpi, vegurinn
upp að honum eins og horngrýtis apalhraun. Pá eru þar yzt hús
Jóns Jenssonar yfirdómara og Jóns Magnússonar landritara, nýlega
bygð af Norðmönnum í norskum stíl, einkennileg og ólík öllum
húsum hér og mjög vönduð og fögur. — Pessi hús eru öll í efri
röðinni í Pingholtsstræti; en í neðri röðinni eru enn nokkur hús,
þar á meðal stórt hús, sem Arnbjörn bygði, sá er varð fyrstur
vitavörður á Reykjaness-skaga, en sfðan keypti Valdimar Ás-
mundarson húsið og er það aðsetur »Fjallkonunnar«. Húsið er
tvíloftað og víðsýni mikið ofan í bæinn úr efra loftinu. Par ofan
hjá húsinu liggur stígur alt ofan að læknum, en við stiginn eru tvö