Eimreiðin - 01.01.1900, Blaðsíða 118
118
inn, eftir að hann hafði verið fluttur frá Skálholti (1785), og stendur
nú »Skólabærinn♦ á þeim stað. Alt til skams tíma var þar bær
eða kotbær, en nú er þar komið laglegt hús, lítið. Ekki vitum
vér, hvernig skólahúsið gamla hefur litið út, en þegar skólinn var
fluttur að Bessastöðum (1805), þá mun það hafa verið flutt þangað,
og það hafa verið þær timburbyggingar, sem lengi stóðu þar á
hlaðinu bakvið Bessastaðastofu, en eru nú horfnar fyrir löngu. I
miðbyggingunni bjó Sveinbjörn Egilsson; þar voru tvær stofur
allstórar og hafa verið vandaðar, því útskurður var með öllum
loftum, og þetta hefur ef vill verið frá skólanum í Reykjavík (nema
því að eins að þetta hafi verið bygt á Bessastöðum að nýju handa
kennaranum, en um það vitum vér ekkert nú). — Niður við veginn
og eins og uppi yfir kirkjugarðinum eru Melshús, en fjær og fyrir
neðan veginn er Melkot; þessir bæir eru mjög gamlir og voru til
fyrir aldamótin; þeir draga nafn af »melunum« eða Sldldinganess-
melum, sem eru þar fyrir utan.
KIRKJEGARÐURINN liggur fyrir ofan veginn, og er ekki
mjög gamall (áður var jarðað í sjálfum bænum, eins og fyr er á
vikið); auðséð er, að þar hefur landið áður legið undir sjó, því að
oft koma skeljar og hörpudiskar upp úr jörðunni þegar grafið er.
I kirkjugarðinum eru minnisvarðar ýmissa merkismanna, sem dáið
hafa síðan hann var vígður; þar var fyrst jörðuð fyrri kona Pórðar
Sveinbjörnssotiar konferenzráðs og háyfirdómara, hún andaðist
1838. Blóm eru gróðursett á sumum leiðunum, og víða eru járn-
grindur í kringum grafreiti, og minnisvarðar, sumir mjög dýrir og
dýrari en fegurðinni svarar; þar er einna elztur minnisvarði yfir
Steingrími biskupi steyptur úr járni; annar er yfir Pétri biskupi, og
þriðji yfir Bergi Thorberg landshöfðingja; báðir þessir minnisvarðar
eru smekklausir að gerð, og meira gert til að hafa þá nógu dýra.
Minnisvarði yfir Jón Sigurðsson er uppmjór granítsteinn, með upp-
hleyptri mynd hans á; þessi lögun á bezt við, og hún er á minnis-
varða yfir Hannes Árnason og Jón Guðmundsson, og kannske
fleiri. Vfir Jón Hjaltalín landlækni er reist hella með letri á, og
hafði hann sjálfur ráðið því. Pá eru og laglegir minnisvarðar yfir
Jón Árnason og frú Katrínu, síra Svein Níelsson prófast, Teit
Finnbogason, Pétur Guðjónsson og fleiri. Fyrir innan grindurnar
við veginn liggur langur steinn með rúnaletri, sem enginn les nú;
þar er Sveinbjörn Egilsson grafinn. — í vesturhluta kirkjugarðsins