Árbók Háskóla Íslands - 01.02.1997, Page 231
jjr_gerðabókum háskólaráðs
229
að fela rektor að láta fara fram lögfræðilega
ut'ekt á lagagrundvelli þeirra réttinda starfs-
ntanna Landsbókasafns íslands - Háskóla-
okasafns, sem fram kornu í kaflanum um
ramlag Háskólans.
-~=^£lS>7: Lagt fram álit lögfræðinga um
agagrundvöll þeirra réttinda starfsmanna
andsbókasafns íslands - Háskólabókasafns,
j’ern mælt er fyrir um í uppkasti að sam-
omulagi Háskóla íslands og safnsins. Nið-
urstaða þeirra er sú, að starfsmenn Lands-
okasafns íslands - Háskólabókasafns séu
starfsmenn háskólastofnunar og eigi því
?ama rétt og aðrir starfsmenn Háskóla ís-
ands og stofnana hans til að sækja um styrki
Ur sjóðum skólans. Um úthlutun styrkja úr
sjoðum Háskóla íslands fer hins vegar
anð eftir þeim reglum, sem háskólaráð
2^ r sett um sjóðina.
Enn var tekið til umræðu sam-
oinulag Landsbókasafns íslands - Háskóla-
J-afns og Háskóla íslands. Rektor var
>o að ganga frá samkomulagi við safnið á
j.rundvelli þeirra draga, sem fyrir fundinum
s^fU' .^ðrstaklega verði hugað að því, hvort
'T kaflinn um framlag Háskólans gæti
j.. 'ö serstakur samningur. Fulltrúar stúdenta
sUf u fram eftirfarandi bókun: „Fulltrúar
enta í háskólaráði sjá sér ekki fært að
amþykkja samkomulag Háskóla íslands og
andsbókasafns íslands - Háskólabókasafns,
um ^6rn e*C'C* er lel:'ð riHir til krafna stúdenta
engingu opnunartíma og bætta þjónustu
J10 stúdenta.“
Vísindanefnd háskólaráðs lagði til,
_]®,erð yrði úttekt á Landsbókasafni íslands
askólabókasafni með tilliti til þess,
bvkL-11'® ^að stnnt> hverju fræðasviði. Sam-
1 var að fela rektor framkvæmd málsins.
'^skúlaútgáfan
Jónas Elíasson, stjórnarformaður
so)S ?'aul8áú>nnar. og Jörundur Guðmunds-
q ’ ue>ldarstjóri útgáfimnar, mættu á fund,
onas mælti fyrir eftirfarandi tillögu:
gáfa as^ð'aráð samþykkir, að Háskólaút-
skv í’ '11eð klutverk og skipan sem lýst er í
aPríMU StjÓrnar Háskólaútgáfunnar frá 24.
und' verði sérstök deild á kennslusviði
lr stjórn deildarstjóra.“ Tillagan var sam-
bykkt
samhljóða.
06.02.97: Jónas Elíasson, formaður stjórnar
Háskólaútgáfunnar, og Jörundur Guðmunds-
son, útgáfustjóri, komu á fund. Fram var lögð
skýrsla um rekstur Háskólaútgáfunnar 1994-
1996, gefin út í febrúar 1997. Jónas ræddi
efni skýrslunnar, og Jörundur gerði grein
fyrir hlutverki Háskólaútgáfunnar og fram-
tíðarhorfum. Skýrslan og framtíð Háskólaút-
gáfunnar voru rædd.
Lyfjabúð H. í.
12.09.96: Vilhjálmur G. Skúlason, formaður
stjórnar Lyíjabúðar Háskólans, greindi frá
málefnum Lyfjabúðarinnar og rekstri hennar,
sem hefur versnað, frá því sem áður var.
Framtíð Lyfjabúðar Háskólans var rædd og
eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða:
„Háskólaráð þakkar núverandi stjórn Lyfja-
búðar Háskóla íslands farsæl störf hennar.
Lyfjabúðin hefur gegnt mikilvægu hlutverki
vegna kennslu í lyfjafræði og skilað Háskól-
anum miklum tekjum til uppbyggingar
kennslu og rannsókna." Rektor bar fram eft-
irfarandi tillögur um kjör nýrrar stjórnar:
Þórdís Kristmundsdóttir, prófessor í lyfja-
fræði, Kristín Ingólfsdóttir, dósent í lyfja-
fræði, Einar Stefánsson, prófessor, Hjördís
Claessen, yfirlyfjafræðingur, og Ingjaldur
Hannibalsson, dósent. Tillagan var samþykkt
samhljóða. Háskólaráð beindi þeim til-
mælum til nýkjörinnar stjórnar Lyfjabúðar
Háskólans, að hún gerði tillögur um framtíð
Lyfjabúðarinnar og skili þeim til rektors svo
fljótt sem verða má.
21.08.97: Ingjaldur Hannibalsson, stjórnar-
formaður Lyfjabúðar Háskóla íslands, og
Þorsteinn Loftsson, formaður stjórnar lyfja-
fræði lyfsala, komu á fund, en fyrir lá bréf frá
formanni stjórnar Lyfjabúðarinnar, dags. 5.
júní 1997, þar sem fram kom, að rekstur
Reykjavíkur Apóteks hefði versnað, frá því
sem áður var. Minni hluti stjórnar Lyfjabúð-
arinnar lagði til, að rekstri apóteksins yrði
hætt. Rætt var um, að rekstur Reykjavíkur
Apóteks yrði seldur, ef hægt yrði. Háskóla-
ráð fól rektor að undirbúa ákvörðun í samráði
við stjórnarformann Lyfjabúðarinnar.
18.09.97: Fyrir var tekin tillaga frá stjórn
Lyfjabúðar Háskólans um að hætta rekstri
Reykjavíkur Apóteks. Ráðið féllst einróma á
erindi stjórnar Lyfjabúðar Háskólans.