Hlín - 01.01.1951, Page 40
38
Hlín
Guðbjörg Friðriksdóttir,
í Skálavík.
MINNINGARORÐ.
Guðbjörg Friðriksdóttir var
fædd 23. aprílmánaðar 1881 í
Lágadal á Langadalsströnd í
Norður-ísafjarðarsýslu. — Fað-
ir hennar, Friðrik Bjarnason
bóndi þar, var fæddur og upp-
alinn hjá afa sínum, Olafi
Bjarnasyni, hreppstjóra og
bónda á Rauðamýri, en móðir
Guðbjargar var Kristín Krist-
jánsdóttir frá Fremri-Bakka á
Langadalsströnd. — Þau hjón
Guðbjörg I'riðriksdóttir. Voru þremenningar að frænd-
semi og komin af sterkum ættum við ísafjarðardjúp og
víðar að af landinu.
í afmælisgrein þeirri, er Gunnar Steinn á Laugabóli
skrifaði 13. júní 1949 um Ólaf Ólafsson í Skálavík sjötug-
an, stendur eitthvað á þessa leið: „Kona lians var Guð-
björg Friðriksdóttir frá Lágadal, indælis- og gæðakona,
glæsileg og dugleg, sem allir elskuðu og virtu sökum
mannkosta hennar."
Önnur ummæli utansveitarmanns hafði prófasturinn
yfir, er hann kvaddi hana látna. Þau: „Að stærra tjón
hefði sveitin ekki getað beðið í einu mannsláti."
Þannig litu þessir rnenn á líf Guðbjargar og starf, og
býst jeg við, að við hefðum mörg viljað gera þessi orð að
okkar orðum.
Ef við lítum til baka, 40 ár eða svo aftur í tímann, sjá-
um við, að margt var öðruvísi þá en nú. Þá var t. d. ekki
til útvarpstæki á hverjum bæ til þess að stytta kvöldvök-
urnar.