Hlín - 01.01.1951, Side 44
■42
Hlín
stormur og kuldi hvein á húsþakinu, og snjór bættist á
snjó ofan og hindraði samgöngur til venjulegra ferðalaga,
þá fundum við einmitt oft, eins og skáldið segir, „að við
eigum sumar innra fyrir andann, þótt ytra herði frost og
kyngi snjó“. Einmitt Jrá finnum við hvað best til þess,
hvað það er sælt að eiga góð heimili, Jrar sem við getum
stundað störf okkar og hugðarefni í næði.
Munir þeir, sem hjer eru til sýnis, eru að nokkru mæli-
kvarði á störf ykkar nemenda hjer í vetur. — Þegar þið
komuð hjer í haust, hefur ykkur ekki dreymt um, að þið
gætuð komið neinu slíku í verk. En svona er j^að, þegar
tíminn er notaður vel og iðni og árvekni sitja að völdum.
En störfin eru fleiri en þau, sem sjást hjer, sem þið
hafið int af höndum í vetur. — Þið hafið allar sýnt lofs-
verða liðvirkni í störfum þeim, sem allstaðar verða að
fylgja í hverjum heimavistarskóla. Stundvísi og háttprýði
í allri framkomu finst okkur þá allra mest virði, bæði fyr-
ir skólann og ykkur sjálfar. Við getum gefið ykkur hjer
hinn besta vitnisburð.
En um leið og þið, sem eruð hjer aðkomandi, lítið á
þessa handavinnu, ber ykkur að gæta þess hvað nemend-
ur okkar eru ungir að árum, flestir innan við tvítugt, að-
eins tvær af stúlkunum yfir það aldursskeið, þær eiga því
þroskabrautina framundan, og hana vilja þær allar ganga.
Jeg vona líka, kæru nemendur, að það sem þið hafið
hjer numið, á þessum stutta tíma, mætti verða ykkur til
nokkurrar hjálpar í framtíðinni, til þess að geta betur en
áður unnið að því að gera heimilin ykkar vistleg, þjóð-
leg og aðlaðandi. Allar ungar stúlkur, sem nokkuð er í
spunnið, langar til að framtíðarheimili sín verði snyrti-
leg og með sem mestum menningarbrag. En um leið og
jrið vinnið að þessu, jrá vinnið þið til heilla og blessunar
fyrir okkar elskaða land og þjóðina, sem landið byggir.
Rannveig H. Líndal.