Hlín - 01.01.1951, Side 52
50
Hlin
efni, hvernig framkvæmdum yrði Iiagað sem kostnaðar-
minst og notadrýgst. Tók jeg þá það ráð að skrifa brjef í
alla hreppa sýslunnar, bæði um tilhögun starfsins, eins
og jeg hafði hugsað mjer það, og hvern kostnað það hefði
í för með sjer. — Jeg gerði þá þegar ráð fyrir, að einn ungl-
ingur frá hverjum bæ, sem unnið væri á, fylgdi mjer yfir
daginn og ynni með mjer þann dag allan. f jeg vann oft á
4—6 bæjum samdægurs). En ein stúlka feða unglingur) úr
hverjum hreppi ynni á námskeiði hjá mjer á Víðivöllum
4—6 daga að vorinu, meðan jeg væri að laga til í mínum
garði, taka upp og útbúa plöntur, sem jeg farga, því jeg
býst við að láta það af plöntum, sem jeg get mist, til um-
ferðakenslunnar, og vona að aðrir, sem eitthvað hafa,
geri slíkt hið sama. Þessir unglingar ætlast jeg svo til að
fylgi mjer um sinn hrepp allan. Síðar geta þeir svo, ef til
vill, aðstoðað dálítið í hreppunum á eftir.
Eftir að jeg hafði fengið svör frá fjelögunum og þau
tjáð sig í öllum aðalatriðum samþykk tillögum mínum,
lagði jeg af stað í fyrstu ferðina 26. mars. Geri jeg í með-
lögðu brjefi til formanns garðyrkjunefndarinnar, grein
fyrir fyrstu ferðunum og undirbúningi þeirra.
Jeg fylgdi þeiiri reglu, sem jeg hafði ætlað mjer í fyrstu
um tilhögun vinnunnar og gafst hún mjög vel. Unglingar
hjálpuðu mjer við vinnuna og fylgdust með mjer milli
bæja eins og ráðgert var í fyrstu. Leiðbeiningunum var
mjög vel tekið.
Jeg hafði námskeið hjer á Víðivöllum, frá 14,—17. maí
að báðum dögum meðtöldum, sóttu það 9 stúlkur úr
hreppunum, voru þær mjer mjög góð hjálp í starfi mínu
síðar.
Jeg starfaði í 6 hreppum, og fylgja vottorð frá þeim,
nema Hegranesi, sem náði ekki nógu snemma til að vera
með. Um Hjaltadal og Kolbeinsdal fór jeg eina umferð í
haust, var það undirbúningur undir starf næsta ár.
Jeg starfaði frá 26. mars til 31. október og fór 4 umferð-
ir um svæðið, — Vann 190 dagsverk, þar af 100 við skrúð-