Hlín - 01.01.1951, Blaðsíða 149
Hlín
147
vjelina, bæði fyrir fjelagið sjálft og svo fyrir konur, sem það
vilja. — Fjelagið á vefstól, sem það keypti af konu á Akureyri.
Kvenfjelagið gaf 27,454 kr. til sundlaugarinnar.
Frá Heimilisiðnaðarfjelagi Fáskrúðsfjarðar vorið 1951:
Þú spyr um vinnubrögð okkar. Við höfum keypt ull og tekið
ofan af henni og fengið hana kembda í lopa og unnið það í
nærföt og sokka ,en togið og verri ull höfum við í stoppteppi,
grófa leista og sjóvettlinga.
En framleiðslan er altof lítil hjá okkur samanborið við eftir-
spurn á prjónavörum. — Fjelagið á tvíbreiðan vefstól með öllu
tilheyrandi.
Nemandi Tóvinnuskólans á Svalbarði skrifar:
Jeg er búin að fá vefstól til notkunar í vetur, en lítið farin að
vefa ennþá, í vefstólnum eru tvær bekkábreiður, og jeg hef
hugsað mjer að vefa flosmottu og borðrenninga, þegar þær eru
búnar. — Haustverkin hafa tekið sinn tima. Svo er líka hjerna
prjónavjel um tíma. Jeg er að keppast við að prjóna sem mest
jeg get á hana, meðan hún er, þetta er sameignarvjel. Jeg prjón-
aði mjer peysu úr bandinu, sem gekk af náttermunum, sem jeg
tætti í og prjónaði hjá ykkur á Svalbarði síðastliðinn vetur,
margir hafa spurt mig hvar jeg hafi fengið svona fallegt garn.
Jeg hef nýlega heimsótt skólasystur mína frá Svalbarði. Hún
sýndi mjer mikið af bandi af ýmsum litum, sem hún hefur verið
að jurtalita úr mosa og gulviðarlaufi undanfarna daga. Sagði
hún að þetta væri í fyrsta skiftið, sem hún litaði sjálfstætt, og
gekk það prýðilega hjá henni. — K.
Altarið í Drangey.
„Altari“ hefur klettastallur einn verið nefndur, þar sem
bjargið rís þverhnípt og þarf að handstyrkja sig á festi síðasta
áfangann upp á eyna. — Við altarið áttu allir að gera bæn sína,
áður en þeir byrjuðu hið ábyrgðarmikla og áhættusama starf
sitt að síga í björgin. — Yfir altarinu var trjetafla og skorið á
hana Faðirvor. — Tafla þessi er löngu glötuð. — Á s. 1. ári fór
aldraður bóndi á Reykjaströnd fram á það við sýslunefnd
Skagafjarðarsýslu að tafla þessi yrði endurnýjuð. Tók nefndin
því vel. — Nú hefur merkur iðjuhöldur í Reykjavík látið gera
stálplötu úr ryðfríu stáli með Faðirvori greyptu í stálið, og af-
hent sýslunefndinni að gjöf. — Plötunni mun verða komið fyr-
ir yfir altarinu á þessu sumri.
10*