Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1977, Page 164

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1977, Page 164
Tímarit Máls og menningar ingunni um skiptingu framleiðsluafurð- anna; framleiðsluafstæðurnar eru látn- ar óáreittar. Verkalýðurinn staðnaði á stigi faglegrar vitundar og barátm fyrir félagslegum umbótum, ekki vegna þess að hann skorti getuna til að hugsa og framkvæma á byltingarsinnaðan hátt, heldur einkum vegna þess að ekkert knúði hann til að breyta lífskjörum sín- um eftir leiðum byltingarinnar. Það hættir enginn lífi og frelsi nema í von- lausri aðstöðu og alls ekki við aðstæður sem kallast mega bærilegar. Henti- og endurbótastefnan um aldamótin sam- svaraði því ekki aðeins beinum hags- munum skrifræðisins innan flokks og verkalýðsfélaga, heldur einnig hins skipulagða vinnandi fólks. Hrun Annars alþjóðasambandsins við upphaf fyrri heimsstyrjaldarinnar leiddi á dramatískan hátt í ljós, að alla sína tíð hafði það aldrei verið byltingarsinn- að, þó svo að vesturevrópsk verkalýðs- hreyfing hefði vaxið mjög á þessum tíma. Það voru ekki aðeins leiðtogarnir sem snerust frá sósíalisma til heims- valdastefnu, heldur einnig sá fjöldi sem þeim fylgdi. Menntamennirnir, sem þóttust boðberar byltingarkenninganna, féllu ekki síður í gröf þjóðrembunnar en sá verkalýður er lét sér nægja dag- lega kjarabaráttu. En þar sem Lenín var löngu hættur að búast við nokkru öðru af hinum síðarnefndu, og sá auk þess hækju heimsvaldastefnunnar í svoköll- uðum „verkalýðsaðli", beindist reiði hans yfir „svikum“ Annars alþjóðasam- bandsins gegn leiðtogunum og þá sér- staklega „bókstafstrúar“-arminum, sem hann hafði lýst yfir samstöðu með fyrir stríð. Það var ekki verkalýðsstéttin, held- ur leiðtogar hennar sem höfðu brugðist; þeir höfðu svikið bæði marxismann og öreiga heimsins. Það varð að skipta á þeim og betri leiðtogum, öðrum flokk- um og nýju alþjóðasambandi til að hefja baráttu öreiganna á nýjan leik. Nærri því öll skrif Leníns eru bar- áttugreinar (Polemik) og sýna stöðugt andóf gegn öllum skoðunum og stefn- um sem viku frá túlkunum hans sjálfs á marxismanum og sögulegum aðstæð- um. Af hörku ræðst Lenín á formæl- endur annarra og andstæðra samtaka og berst fyrir fræðilegu forræði innan eigin flokks. Það sem hann telur sig hafa fram að færa er hin rétta fræðikenning og þar með hin rétta baráttufræði og baráttuaðferð byltingarhreyfingarinnar - fyrst og fremst í Rússlandi en síðar einnig alþjóðlega. Verk Leníns beinast gegn sviksömum leiðtogum, gagnbyltingarsinnum, tæki- færissinnum og endurskoðunarsinnum. Þótt í sjálfu sér sé ekkert á móti því, þá er þessi einhliða takmörkun við leið- andi hópa sósíalískrar og gervi-sósíal- ískrar hreyfingar samt undarleg. Félags- leg viðleitni bænda- og verkalýðsfjöld- ans myndar í augum Leníns aðeins sjálf- sagðan bakgrunn hinnar pólitísku bar- áttu um leiðtogasætið í væntanlegri byltingu, og þó svo að byltingin sé ekki möguleg án þessa fjölda telur Lenín það augljóst mál að hjálparlaust geti fjöld- inn ekki gert byltingu. Og þar sem byltingin þarfnast pólitískrar leiðsagnar liggur hinn ákvarðandi þáttur hennar ekki hjá fjöldanum sjálfum heldur hin- um leiðandi flokki og leiðtogum þess flokks. Saga verkalýðshreyfingarinnar hafði raunar sýnt að byltingarsinnaðir leiðtog- ar í dag geta verið andbyltingarsinnaðir á morgun og að baráttusamtök stéttar- innar hverfast auðveldlega í andstæðu 386
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.