Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1977, Page 174

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1977, Page 174
Tímarit Máls og menningar skopstæling. Þeir urðu að gera þetta, því að annars hefði þeim alls staðar verið hafnað og þeir verið yfirgefnir af öllum, svo ákafan stuðning hafði þessi bylting hlotið um allan heim.“25 Þau sterku áhrif, sem kommúnan hafði bæði á borgarastétt og öreiga, sýndi að áhrifamáttur samfélagslegrar stéttaskiptingar er miklum mun meiri en alls þess hugmyndafræðilega og jafn- vel efnislega mismunar sem er að finna innan hverrar sérstakrar stéttar. Það sem lá þessum sterku áhrifum til grundvall- ar, var ekki hin sérstaka stefnuskrá kommúnunnar, hvort sem hún gerði ráð fyrir sambandsstjórn eða miðstjórn. Það réði ekki heldur úrslitum, hvort það var á dagskrá að svipta borgarastéttina eign- um sínum eða hvort sá möguleiki var einungis fyrir hendi. Það sem mestu skipti var sú einfalda staðreynd, að stór hluti verkalýðsstéttarinnar vísaði drottn- un borgarastéttarinnar á bug, vopnaðist og bjóst til að ráða örlögum sínum sjálf- ur. Hið villimannlega svar borgarastétt- arinnar við þessari fyrsm og heldur veikburða tilraun öreiganna til sjálfs- ákvörðunar afhjúpaði fyrir verkalýð alls heimsins, en ekki bara öreigum Parísar, hina takmarkalausu heift stéttaróvinar- ins og algeran skort hans á sáttfýsi. Alls staðar fylkti verkalýðurinn sér til sam- stöðu með verkamönnum Parísar, alger- lega óháð þeim ólíku skoðunum á fræði- kenningu og starfi, sem var að finna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þess vegna er það út í hött að leita að ástæð- um þess að Marx gerðist verjandi komm- únunnar. Það sem greindi Marx frá kommúnördunum skipti engu máli and- spænis naktri baráttu milli borgarastétt- ar og öreiga. Það sem tengdi Marx við kommúnuna voru þessi beinu átök, sem útilokuðu allt annað en vörn kommún- unnar — eins og hún var. Ekki má líta á eftirmæli Marx um Borgarastríðið í Frakklandi, sem hann ritaði í miklum flýti, sem leiðbeiningarit um öreigabylt- ingu og uppbyggingu sósíalísks ríkis, - ekki síst vegna þess að Marx áleit bæði fyrir og eftir, svo og á meðan á hruni kommúnunnar stóð, að tilverumöguleik- ar hennar væru engir. Tíu árum síðar skrifaði hann Nieuwenhuis: „Þér bend- ið mér ef til vill á Parísarkommúnuna, en burtséð frá þvi að hún var einungis uppreisn í einni borg og við í hæsta máta óvenjulegar aðstæður, þá var meiri- hluti kommúnarda alls ekki sósíalistar og gátu heldur ekki verið það. Með smáræði af heilbrigðri skynsemi hefðu þeir þó getað náð málamiðlun við Ver- sali sem gagnað hefði öllum fjöldanum. Lengra varð ekki náð við þessar að- stæður. Með því að gera Banque de France upptækan hefðu þeir bundið enda á steigurlæti Versalabúa og skotið þeim skelk í bringu, o. s. frv. o. s. frv.“26 Hversu vonlaus sem barátta komm- únunnar var, kom þar þó fram, hve al- ræði öreiganna er nauðsynlegt til að brjóta hið borgaralega ríki á bak aftur. En ekki er hægt að líta á kommúnuna sem fyrirmynd kommúnisks ríkis, eins og Lenín hélt fram, þótt ekki væri nema vegna þess, að raunverulegt „lokamark- mið verkalýðsbaráttunnar er ekki neitt „lýðræðislegt", „valddreift" né heldur „ráðstjórnar“ríki, heldur stéttlaust og ríkislaust samfélag."27 I ríkiskenningu Leníns hafði komm- únan úrslitaþýðingu, ekki vegna raun- verulegs inntaks hennar, heldur vegna hins að Marx og Engels höfðu prísað hana sem alræði öreiganna og Lenín taldi rétt að skjóta sér á bak við áhrifa- vald þeirra. Upptendraður af bylting- unni og andstætt þeirri fyrri sannfær- 396
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.