Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1945, Page 46
44
26. Munnangur (stomatitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 26.
S júklingnfjöldi 1936—1945:
1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945
Sjúkl........ 171 109 145 129 171 102 106 119 102 130
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Stakk sér niður flesta mánuði ársins.
Ólafsvíkur. Sumarmánuðina maí—júlí og í ágúst. Aftur „strepto-
coccal sore throat“? eða venjuleg angina? eða blátt áfram scarlatina.
ísafj. Nokkur allsvæsin tilfelli á kornabörnum. Engin lyf sýndust
hafa áhrif á gang veikinnar.
Blönduós. Börn í Höfðakaupstað og í Bólstaðarhlíðarhreppi.
Sauðárkróks. Gerir nú litið vart við sig.
Húsavikur. Ekki gengið sem faraldur, en oft einhver slæðingur
(ekkert tilfelli skráð).
Þórshafnar. Fá og væg tilfelli.
Búða. Nokkur tilfelli, einkum.í börnum, öll væg (ekkert skráð).
Vestmannaeyja. Stakk sér niður á strjálingi.
Keflavíkur. Fleiri ungbörn munu hafa fengið munnbólgu en þau,
sem skráð eru. Fá þau oft mikinn hita með þessu, þótt ummerki séu
ekki mikil, og virðast súlfalyf verka allvel til að vinna hug á veikinni,
en vitanlega eru þau ekki gefin, nema mikill hiti sé og ekki skýran-
legur á annan hátt.
27. Hlaupabóla (varicellae).
Töflur II, III og IV, 27.
Sjúklingafjöldi 1936—1945:
1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945
Sjúkl........ 256 292 385 292 245 133 337 516 328 299
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Stakk sér niður, einkum fyrra helming ársins.
Bolungarvíkur. 1 júlí er 1 skrásettur með hlaupabólu. Enda þótt
sjúkdómur þessi gerði ekki vart við sig á fleirum, varð varla litið
öðruvísi á en að um þenna sjúkdóm væri að ræða.
ísafj. Örfá tilfelli.
Hólmavíkur. Nokkur tilfelli.
Blönduós. Nokkur börn í Höfðakaupstað á haustmánuðum.
Húsavíkur. í janúar kom faraldur í Flatey og sýkti mikinn hluta
skólabarna og önnur börn þar. í september bar aftur á faraldri hér,
og hélzt svo til áramóta.
Kópaskers. Auk nokkurra tilfella á mánaðarskrá hafði ég fregnir
af 5 tilfellum á 2 heimilum, sem höfðu náin samgang. Þar sigldi
hlaupabólan í kjölfar ristils á öldruðum manni á öðru heimilinu.
Þetta verður til þess að minna mig á þá kenningu, að þessir sjúkdómar
orsakist af einum og sama virus.