Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1945, Síða 57
55
liét gamla héraðsheitinu, þ. e. a. s. sjávarþorpunum Eyrarbakka og
Stokkseyri, enda áður vitað, að svo var.
Laugarás. Berklaveiki er hér blessunarlega litil, eins og áður. Úr
meningitis dó ársgamalt barn, aðflutt, átti herklaveikan föður. Kona
með pleuritis fékk ígerð í rif. Eins og að undanförnu berklaprófaði
berklayfirlæknir og skyggndi nemendur í unglingaskóla, íþróttaskóla
og húsmæðraskóla á Laugarvatni. Fannst enginn þar neitt athuga-
verður.
Keflavilcur. Mjög er erfitt ennþá fyrir héraðslækni að hafa árlegt
yfirlit yfir berklaveiki í héraðinu, þar sem sjúklingarnir ýmist leita
til Líknar eða til Vífilsstaða til rannsóknar, án þess að héraðslæknir
fái vitneskju um. Hef ég hug á að ráða bót á þessu í samráði við
berklayfirlækni.
3. Geislasveppsbólga (actinomycosis).
Töflur V—VI.
Sjúklingafjöldi 1936—1945:
Sjúkl......... 1 „
Er ekki getið á árinu.
1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945
,, ,, ,, ,, ,, », 1 »» »»
4. Holdsveiki (lepra).
Töflur V—VI.
S júklingajjöldi 1936—1945: 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945
A spítala ... 18 18 17 17 17 16 15 14 13 11
1 héruðum . . 7 6 5 4 5 5 6 5 5 5
Samtals .... 25 24 22 21 22 21 21 19 18 16
Utan holdsveikraspítalans í Ivópavogi er enn kunnugt um 5 holds-
veika sjúklinga í þessum héruðum:
Rvík: 2 (karlar 47 og 66 ára).
Húsavíkur: 2 (karl 64 ára og kona 70 ára).
Grímsnes: 1 (karl 76 ára).
Læknir Holdsveilcraspítalans í Kópavogi lætur þessa getið:
1 ársbyrjun 1945 voru sjúklingar 13: 6 konur og 7 karlar, þar af 1
Norðmaður. Enginn bættist við á árinu, og enginn var sendur heirn.
2 sjúklingar dóu á árinu (karlar). Við árslok voru 11 sjúklingar á
spítalanum, 6 konur og 5 karlar. Sömu 2 sjúklingar og áður, sem bú-
settir eru í Reykjavík, komu reglulega til eftirlits. Eins og áður hafa
nokkrir sjúklingar notið hjálpar augnlækna og háls-, nef- og eyrna-
lækna, þegar þess hefur þurft.
Að öðru leyti láta læknir þessa getið:
Húsavikur. Sömu sjúklingar og áður, við góða heilsu.
Laugarás. Sami sjúklingur og undanfarin ár.