Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1945, Side 71
69
tivum um allan líkamann. Meðferð: Linim. zinci oxydi og C-fjörvi.
Batnaði vel.
Vopnafi. 9 tilfelli.
Egilsstaða. Algengur sjúkdómur hér, illur viðureignar og vanþakk-
iátt verk við hann að fást. Alls konar smyrsl reynd, yfirleitt með
jafnlélegum árangri, einkum þegar sjúklingarnir fást við slciptingarn-
ar sjálfir.
Djúpavogs. Virðist nokkuð algengur sjúkdómur hér.
Eyrarbakka. Gerir hér töluvert vart við sig.
14. Emphysema.
Hvammstanga. Nokkrir eldri menn eru hér með þenna kvilla sam-
fara heymæði.
Húsavíkur. Ofnæmi fyrir heyryki er mjög algeng't hjá mönnum,
sem sinna gegningum. Mætti bæta úr með góðum heygrímum, en erf-
itt að fá þær.
Búða. 3 sjúklingar.
Hafnar. Nokkrir gamlir menn þjást hér af þessum leiða sjúkdómi.
15. Epilepsia.
Ólafsfi. 1 sjúklingur.
Hafnar. Mér er kunnugt um 5 tilfelli, allt ungt fólk. 2 drengir uin
fermingu, annar í Öræfum, liinn í Suðursveit, með nokkurs konar
petit mal. Þó fer öðrum þeirra versnandi. Maður í Suðursveit, um 30
ára, allslæmur, og annar um fertugt, sem hefur þó lagazt nokkuð í
seinni tíð. Hér á Höfn er stúlka um tvítugt, mjög langt leidd. Hún er
°i'ðin andlega sljó og lílcamlegur vesalingur. Ættgengi virðist hér
kom til greina.
Eyrarbakka. Hef séð hér 2 telpur á aldrinum 5—10 ára.
16. Erysipeloid.
Bolungarvíkur. 10 sjúklingar skráðir á haustmánuðum. Hefur
þessa sjúkdóms orðið vart hér árlega undanfarið. Mín reynsla er sú,
ilð súlfalyf reynist þar vel. Lengi vel notaði ég joðáburð við þessum
kvilla. Vildi það verða þrálátt.
lsafi. Ámubróðir áberandi í sláturtíðinni. Mér sýnast súlfalyf vera
srangurslaus við veikinni.
Hólmavíkur. Einkum í sláturtíð.
Hvammstanga. Nokkur tilfelli í sláturtíðinni.
Sauðárkróks. Keinur talsvert fyrir eftir sláturtíð á haustin.
Ólafsfi. 1 sjúklingur.
Þórshafnar. 6 tilfelli í sláturtíðinni. Penslun með sol. chromi tri-
°xydi 10% reyndist vel.
Vopnafi. Erysipeloid 10.
Egilsstaða. Mikið um þenna kvilla í sláturtíð, og er hann þrálátur.
Bezt hefur reynzt sterk krómsýruupplausn (33%).
Seyðisfi. Mjög lítið um kvillann.
Vestmannaeyja. Með meira móti hefur borið á sjúkdómnum í haust,
°g hafa menn einkum fengið hann við að hrufla sig á fingri, þegar