Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1945, Side 124
122
kuldalega tekið í fyrstu, en virðast vinna hylli manna við viðkynn-
ingu. Veldur þar sennilega miklu um, hversu giftusamlega tókst til
um val stjórnenda þeirra. Til eru þeir, sem hafa þá lífsskoðun, að
slík löggjöf sem þessi sé búin til fyrir móðursjúkar kerlingar, borga
þó sín iðgjöld með nöldri, þverneita að þiggja eyrisvirði af samlagi,
meðan þeir séu „sjálfstætt fólk“. Þjónusta mín við samlögin er tíma-
frek, en viðskiptin eru vinsamleg, enda þótt ósamið sé við þau öll
enn. Tryggingastofnun ríkisins bannaði samlögunum að semja fyrir
um ári síðan, ætlaði að gera þetta lítilræði sjálf, en ekkert hefur
heyrzt frá þeirri stofnun síðan um þetta mál. Það er fieira en fólkið
úr sveitunum, sem flyzt til Reykjavíkur, en kemur ekki aftur.
Þirigeijrar. Sjúkrasamlög stofnuð í Þingeyrar- og Mýrahreppum.
Iðgjöld í hinu fyrra 5 krónur, en í hinu síðara 3 krónur á mánuði.
Bolungarvíkur. Sjúkrasamlag Bolungarvíkur tók til starfa um
áramótin. Iðgjald 7 krónur á mánuði fyrir 16 ára meðlimi og eldri.
ísajj. Heilsuverndarstöðin starfaði með líku móti og áður. Þó var
ungbarnaeftirlitið stopult vegna húsnæðisvandræðanna. Berklavarn-
arstöðin mikið sótt eins og áður. Hjúkrunarkona starfaði við stöð-
ina allt árið. Sjúkrasamlag Isafjarðar starfaði með svipuðum hætti
og áður. Samningar óbreyttir nenia við sjúkrahúsið, en þar hækkuðu
daggjöldin nokkuð. Iðgjöldin hafa haldizt óbreytt um margra ára
skeið, kr. 9,50 á mánuði. Hagur samlagsins er blómlegur, og á það nú
kr. 237881,64 í sjóði. Auk löghoðinna hlunninda kostar samlagið
tannviðgerðir unglinga alit að 18 ára aldri. Það hefur og mikið til
kostað ungbarnaeftirlitið og borgar veikindadagpeninga. Sjúkrasam-
iag Eyrarhrepps var stofnað í ársbyrjun og tók til starfa 1. júlí. Ið-
gjald kr. 8,00 á mánuði. Lögboðin hlunnindi. Engir samningar við
lækna eða sjúkrahús. Borgað fyrir hverja þjónustu eftir taxta. Apótek
veitir 5% afslátt af lyfjum.
Ögur. 1 4 hreppum héraðsins af 5 er nú búið að stofna sjúkra-
samlög, en aðeins 3 voru orðin virk á árinu. Iðgjöldin eru 4—5 kr.
á mánuði. Sjúkrasamlögin veita aðeins lögboðin hlunnindi nema
í Súðavík, en þar greiðir sjúkrasamlagið V% ferðakostnaðar læknis.
Engir samningar við lækna eða sjúkrahús, en borgað hálfsárslega
eftir reikningi. Stofnun læknisvitjunarsjóða er í undirbúningi fyrir
alla hreppa héraðsins.
Hesteyrar. Sjúkrasamlög tóku til starfa í báðum hreppum héraðs-
ins á árinu. Iðgjöld 4 og 5 kr. Þótti mörgum nóg' um þessi útgjöld í
fyrstu, en er sjúkrasandögin höfðu starfað nokkra mánuði, jukust
vinsældir þeirra. Áhugi mikill er vaknaður fyrir stofnun læknisvitj-
unarsjóða, og er í undirbúningi stofnun þeirra eftir áramótin.
Árnes. Sjúkrasamlag stofnað á árinu í Árneshreppi. Tók til starfa
1. júlí.
Hólmavíkur. Sjúkrasamlag tók til starfa í Kaldrananeshreppi. Ið-
gjald 42 krónur á ári.
Hvammstanga. 6 sjúltrasamlög starfa nú í héraðinu. 5 tóku til
starfa á árinu: Bæjarhrepps, Ytra- og Fremra-Torfustaðahreppa,
Hvammstangahrepps og Þorkelshólshrepps; 1 var starfandi fyrir,
Staðarhrepps.