Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1945, Síða 239
237
vitað ein hin sjálfsagðasta þörf þess og skylda að mennta sínar eigin
hjúkrunarkonur, og er það í samræmi við það, sem gerist í þeim efn-
um um allar jarðir, enda nægilega stór sjúkrahús óhjákvæmilegur
grundvöllur allrar hjúkrunarkvennamenntunar.1)
Það, sem veldur því, að ríkisstjórnin hikar við að ráðast þegar í að
reisa hjúkrunarkvennaskólahús Landsspitalans samkvæmt gerðum
uppdrætti og áætlunum, er fyrirhuguð stærð hússins og samsvarandi
mikill kostnaður. Óneitanlega er húsið mikið og verulega umfram
þarfir, eins og þær eru nú, en hins vegar mundi mjög óhagkvæmt,
með tilliti til framtíðarinnar, að draga svo að nokkru næmi úr stærð-
inni, og kemur það naumast til álita. Málið er því, eins og er, í full-
kominni sjálfheldu. Út af þessu dettur mér í hug að hreyfa því við
háttvirt bæjarráð, hvort það, að athuguðu máli, mundi ekki sjá hag
bæjarins í þvi að bjóða fram samvinnu sína til að hrinda af stað
byggingu fyrirhugaðs hjúkrunarkvennaskólahúss Landsspítalans.
Auðsjáanlega mundi það fyrst um sinn geta svarað sameiginlegum
þörfum ríkis og bæjar, og víst kemur til álita, að báðir þessir aðiljar
standi til frambúðar saman um hjúkrunarfræðsluna. Miðað við fyrir-
sjáanlegar þarfir bæjarins í nálægri framtíð, mætti hann telja hag
sínum mjög vel borgið, ef hann gengi í helmingafélag við ríkið um að
reisa hjúkrunarkvennaskólahús og rekstur þess. Gæti það orðið hinn
fyrsti og ekki hinn minnst verði áfang'i bæjarins til að koma upp al-
mennu bæjarsjúkrahúsi, sem svo mjög er aðkallandi. Vænti ég að
heyra undirtektir háttvirts bæjarráðs hið allra fyrsta, og ljái það
máls á að ganga til þeirrar samvinnu við rikið, sem hér er stungið
upp á, mun ekki á mér standa að flvtja málið á þeim grundvelli fyrir
ríkisstjórninni.2)
1) Tilætlunin er ekki að gera Reykjavík afskipta með tiliiti til hjúkrunar-
fræðslu á vegum rikisins. Samkvæmt lögum annast ríkið bóklega fræðslu allra
hjúkrunarnema, en sjúkrahús víðs vegar um land hafa veg og vanda af liinni
verklegu fræðslu, sem tekur langsamlega mestan hluta námstímans (88%).
Meðan á verklega náminu stendur, sér livert sjúkrahús að sjálfsögðu nemum
sinum m. a. fyrir húsnæði. Ailur meginhluti hins fyrirhugaða hjúkrunarkvenna-
skólahúss verður heimavistir handa hjúkrunarnemum Reykjavikursjúkrahúsanna
allan námstímann, og réttlætir það fyllilega samvinnu ríkisins og Reykjavíkurbæjar
um að standa saman um húsið og rekstur þess. Annað mál er það, að þegar frá
líður og sjúkrahúsrekstur bæjarins eykst, kann að fara svo, að bærinn sjái sér
hag í því að taka að öllu leyti í sínar hendur fræðslu og forsjá hjúkrunarnema
sjúkrahúsa sinna, og þarf þá engum vandkvæðum að verða bundið að slíta
félagsskapnum.
2) Bréfi þessu hefur bæjarráð hvorki sinnt né svarað.