Skírnir - 01.01.1886, Page 111
B A LKAN SLÖNDIN.
113
leyti á Bolgaralandi — og reka landstjórann, vildarþjón Rússa
frá stjórninni, en kveðja til hennar Alexander jarl, og koma
undir hann landinu. Smáfjelög eða samsærisnefndir að kalla
i hverjum bæ og hverju hjeraði, og landvarnarsveitunum og
foringjum þeirra í samsærin komið. Til athafna skyldi tekið
í miðjum september, þegar uppskerunni væri lokið, og land-
varnarliðið skyldi kvatt saman til vopnaburðar og herskapar-
bragða. Gavril komu að vísu njósnir um, hvað hjer var í
efni, og hann ljet hörð hótunarboð birt, og umboðsmenn sögðu
á reiði keisarans, en að hvorugu var farið, enda átti land-
stjórinn sjer fáa trúa í liði sínu 1 Filippópel, höfuðborg Iands-
ins, voru forsprakkar uppreisnarinnar. Henni svo fram komið
17. september, að tvær sveitir liðsins gerðu atsúg að höll
landstjórans, en höfuðforingi þeirra, Nikolajeff að nafni, gekk
inn til hans, og ljet hann vita, að hann yrði að hlýða boðum
fólksins og fara frá stjórnínni. Síðan leiddi hann Gavril út
með sjer til vagns, og var hann síðan færður burt úr borginni
til varðhalds í öðrum bæ eða þorpi, og er svo úr sögunni.
Nefnd sett til bráðabyrgða fyrir stjórn landsins, og þau boð
þegar send Alexander jarli, sem þá var staddur í Tirnófu,
hinni gömlu höfuðborg Bolgaralands, að fólkið hefði tekið hann
til höfðingja yfir sig. Jarlinn birti það boðskjal þegar, að
hann hefði við landstjórninni tekið, og hraðaði ferð sinni suður
um Sjipkaskarð til Filippópels. Honum var alstaðar með fagn-
aðarómi tekið á leiðinni, og í höfuðborginni með uppljómun
og hátíðarhöldum.
Nú mundi bæði Tyrkjum og stórveldunum heldur i brún
bregða — og Rússum þá ekki sizt, því þrátt fyrir allan undir-
róðurinn þar syðra, kemur öllum saman um, að þeir hafi eptir
Kremsierfundinn og samkomulagið við Englendinga viljað, að
öllu slægi í kyrrð i Balkanslöndunum. Alexander jarl sendi
þegar soldáni skeyti um tiltektir sinar, og lagði rikt við, að
hjer skyldi ekkert í mót hans drottinvaldi framið. og hjet hon-
um óbrigðilegri hlýðni og hollustu. 1 skýrsluskeytum jarls til
stórveldanna sjerilagi fram tekið, að hann hefði ekki getað
visað frá sjer einrómaðri kosningu fólksins. Soldán vísaði
8