Skírnir - 01.01.1886, Page 132
134
DANMÖRK,
lcaupmenn rjetti þó við aptur sem tæpt voru staddir. — þrátt
fyrir atvinnuþröngina bárust járnsmiðir («sveinar») það óráð
fyrir að gera verkafall — að því sagt var — eptir fortölum
og áeggjan sósialista, þreyttu það í 3—4 mánuði og urðu
þann tíma að lifa á framlögum og samskotum bæði verknaðar-
fólks og bænda. Arangurslaust blutu þeir að gefa upp þetta
þráhald sitt, og urðu þá fjöldi þeirra miklu ver staddir enn
fyr. Allt um það eru flestir leiðtogar og forustumenn verkn-
aðarfjelaganna enn af sósíalistaliði, en sökum þess, að þeir
hafa gengið i pólitiskt bandalag með vinstrimönnum, hafa
hægrimenn stofnað nýtt fjelag, sem nefnist «Verkmannavörn»,
og heitir það þeim öllum betri ásjá, sem i það ganga og við
hina vilja skiijast.
I byrjun októberm. kom Holm, kapt. í sjóhernum, og sveit
hans aptur frá austurströnd Grænlands. þeir lögðu af stað
frá Kaupmannahöfn um vorið 1883, og komust nokkuð norðar
enn nokkur fyrri, eða yfir 66. mælistig. Leifar af fornbyggð
(Norðmanna eða íslendinga) fundu þeir engar, og þykir þetta
styrkja þeirra mál, sem segja, að «Austurbyggðin», er svo nefnist,
hafi ekki verið fyrir austan höfðann «Cap Farvel», en á útsuður-
strönd Grænlands. þeir höfðu þaðan margar náttúrugersemar
eða fágæti, en fatnað og aðra muni úr byggðum Austurbúa
Grænlands.
Eins og títt hefir verið undanfarin ár var að áliðnu sumri
mikið um heimsókn höfðingja hjá þeim konungi vorum og
drottningu. þar kom Rússakeisari, drottning hans og börn
þeirra, þau prinsinn af Wales og Alexandra og dætur þeirra
þrjár, Georg konungur frá Grikklandi, auk fl. Nýir gestir voru
hertogínn af Chartres, kona hans og dóttir, en þau Valdimar
og prinsessan unga höfðu trúlofazt í Gmunden hjá systur hans
(þyri). 17. okt. fylgdi Louise drottning syni sínum til brúð-
kaupsins, sem stóð þann 22. okt. á hallargarði Orleaninga, sem
Eu heitir.
Mannalát. 21. janúar dó hálfáttræður J. P. Trap,
«leyndarráð», ágætur og mikilsmetinn maður. Hann var heim-
ullegur skrifari konungs vors, og fylgdi honum til íslands 1874.