Skírnir - 17.06.1911, Page 14
110
Frá uppvexti Jóns Sigurðssonar.
eftir kostunum og nota þá vel, en sjá til, að ókostirnir
gjöri sem minst tjón. Einkanlega varðar mjög um þetta
í hinum harðsætari löndum, því kostir þeirra eru ógreið-
arf aðgöngu, og þarf fylgis og clugnaðar, ef þeir eiga að
verða að fullum notum. En fylgi og dugnaður geta eins
lýst sér hjá fámennri þjóð eins og fjölmennri; og reynslan
sýnir, að jafnvel á meðal heldri þjóðanna hafa einstakir
menn fyrst tekið sér fram um sérhvern dugnað, en síðar
hefir þótt vel takast, ef aðrir hafa viljað taka það eftir
sem hinir léku fyrir*.
Jón Sigurðsson gaf Bókmentafélaginu handritið af
æfi Franklíns, og hefir æfisaga þessa spaka og þjóðnýta
Nágætismanns að maklegleikum orðið mjög vinsæl hjá al-
þýðu manna hér á landi.
Þegar Kristján VIII. kom til ríkis 3. desember 1839
hugðu allir frjálslyndir menn í Danaveldi gott til ríkis-
stjórnar hans. Hann hafði á unga aldri verið landsstjóri
í Noregi, þing Norðmanna hafði í einu hljóði kosið hann
til konungs og hann hafði staðfest stjórnarlög þeirra, sem
þóttu á þeim tímum frjálslegust allra stjórnlaga hér í
álfu. Eftir að hann neyddist til að leggja niður konung-
dóm í Noregi, hafði hann ferðast víða um lönd og numið
þar margan fróðleik og verið um mörg ár styrkasta stoð
allskonar menta og vísinda í Danmörku. Þar að auki
var hann vel viti borinn og talinn betur að sér en fiestir
aðrir þjóðhöfðingjar á þeim tímum. Það var því engin
furða þótt heillaóskir drifu að honum hvaðanæfa úr rík-
inu, er hann var seztur að völdum, en í flestum ávörp-
um, er honum voru flutt, var annaðhvort með berum
orðum eða á huldu vikið að því, að menn vænti að hann
mundi veita þegnum sínum stjórnarbót. I ávarpi því sem
íslenzkir fræðimenn og kaupmenn í Kaupmannahöfn
fluttu konungi hálfum mánuði eftir að hann tók við stjórn
tjáðu þeir honum einnig óskir sínar og vonir: að verzl-
unarfrelsi á íslandi yrði efit og verndað af Hans konung-
legu Hátign, skólinn bættur, að prestaefnum gefinn kostur
á betri og hagkvæmari fræðslu, læknum fjölgað og »að