Skírnir - 17.06.1911, Síða 23
Frá nppvexti Jóns Sigurðssonar.
119
-sonar til Páls sagnfræðings Melsteðs dags. 29. sept. 1840
sjáum vér að Jón er höfundur greinarinnar (sbr. og bréf
hans til Gísla læknis Hjálmarssonar 8. sept. 1840).
Höf. getur þess fyrst, að landið hafi miklar auðsupp-
sprettur, ef þær séu rétt notaðar. Jarðyrkja og kvikfjár-
rækt geti tekið miklum framförum. Með skýrskotun til
ferðabóka Eggerts og Olaviusar og átgáfu Jóns Eiríks-
sonar af riti Páls Vídalíns um viðreisn íslands (Deo, regi,
patriae) telur hann upp ýmsa aðra landkosti og hlunn-
indi. Náttúran sjálf bendi til þess að Islendingar þurfi
verzlunarfrelsis eins og allar aðrar þjóðir, og af reynslu
síðari tíma megi marka, að velmegun eflist því meir sem
verzlunin sé frjálsari, þar eð hún sé undirstaða allra
bjargræðisvega, enda sé hún þjóðunum sama sem andar-
drátturinn hverjum einstakling. Þar næst er sýnt fram
á, að Island þoli verzlunarfrelsi. Vörur þess sé jafnan
útgengilegar, en peningaráð Dana og Islendinga sé ekki
mikil þar sem leggja þurfi mikið í kostnað tii þess að efla
atvinnubrögð landsmanna. Fyrir því sé öllum fyrir beztu,
að þeim sé greiddur vegur til velmegunar og viðgangs
með því að verzlunin sé látin laus. Þar næst leiðir
höf. rök að því, að leysing verzlunarinnar sé landinu
stórnauðsjmleg. Megi marka það af vöruskortinum,
sem kvartað sé yfir á hverju ári, sem og af því, að
varan gangi öll út, enda þótt vöruverð sé fært fram um
50 %—100 % á veturna, er vörubirgðir fari að réna.
Kaupmenn geti og stundum ekki tekið við öllum íslenzk-
um varningi, er þeim bjóðist, af því þá vanti skip. Is-
land eigi heimting á að verzlunin sé frjáls; það hafi
aldrei verið unnið með vopnum og sé ekki nýlenda neins
ríkis. Islendingar eigi að hafa jafnræði við Dani, þeir
sé sérstök þjóð og eigi rétt til að njóta þjóðernis síns.
Konungur sé sjálfur á þeirri skoðun, eins og úrskurður
hans 20. maí um fulltrúaþing á íslandi sýni, og hann
inuni og að sjálfsögðu ætla að veita landinu verzlunarfrelsi.
Enn er það sýnt, að verzlunarfrelsið muni verða hagnað-