Skírnir - 17.06.1911, Page 40
136
Frá uppvexti Jóns Sigurðssonar.
Síðan er vikið að þeim atriðum í ræðu Christensens
þ. 24. ágústmánaðar, er þeir óska sér í lagi að bygt verði
á við stofnun alþingis:
1) að kosningarlögin á Islandi mætti verða svo óbundin,
einföld og óflókin sem kostur er á;
2) að fulltrúatalan verði aukin, svo að þjóðin velji 42
fulltrúa, en konungur 6;
3) að alt fari fram á þinginu á íslenzku;
4) að þingstofan verði öllum opin;
5) að því verði skotið undir úrskurð alþingis sjálfs og
vilja Hans Hátignar konungsins hvar þingið skuli
háð.
í bréfinu eru leidd stuttlega rök að þessum atriðum, en
óþarfl virðist að geta þeirrar röksemdaleiðslu hér.
Sama dag var og fulltrúum Islendinga á Hróarskeldu-
þingi flutt bréf1) undirskrifað af 27 íslendingum i Kaup-
mannahöfn. Þar er með svofeldum orðurn skorað á þá að
fylgja fastlega fram atriðum þeim, sem tekin eru fram í
bréflnu til Christensens:
. . . »Vér erum þess fullvissir, að þið, heiðruðu full-
trúar Islendinga! eruð oss samdóma um, að herra Balthaz-
ar Christensen á innilegustu þakkir skyldar af öllum oss
Islendingum fyrir það, hversu skörulega honum heflr tek-
ist að halda fram þeim atriðum máls þessa, sem allir Is-
lendingar verða að játa að standa á svo miklu, að gagn
þingsins um hríð er að mestu undir komið hversu þau
aði dönskum mönnum, sem ekki væri fullfærir í islenzku, að mæla móð-
urmáli sínu, fórust Balthazar Christensen orð á þessa leið:
„Að nokkrum skuli vera leyft að tala dönsku á íslenzku fulltrúaþingi,
sem haldið er á íslandi, það finst mér vera fráhærlega óviðurkvæmi-
legt, og muni særa svo og erta sómatilfinningu þjóðarinnar, að eg verð
að biðja þingmenn þess mjög innilega að ráða frá að slíkt verði ákvarð-
að. Mér þykir ekki þörf að taka þetta betur fram, en varla munu það
vera rangindi, þó það væri áskorðað við þá dönsku herrana góðu, sem
vilja fá embætti á Islandi, að þeir fái það ekki nema þeir hafi það fyr-
ir að læra mál landsmanna11. (Fréttir frá fulltrúaþingi í Hróarsk. 1842,,
136. bls.).
') Fréttir frá fulltrúaþingi í Hróarskeldu 1842, 223—225. hls.