Skírnir - 17.06.1911, Side 48
144
Frá uppvexti Jóns Sigurðssonar.
þ vrí, að svona lýsi nú einhver duglegasti maðurinn úr is-
lenzku nefndinni kosningarlögum þeim, er hann sjálfur og
hinir aðrir »vitrustu menn«, sem »eru töluvert hnignir á
efra aldur«, hafi samið, og hafi verið lögleidd einungis
vegna þess, að stjórnin hafi reitt sig á álit þessara manna,
þrátt fyrir bænarskrár Islendinga í Danmörku, sem hafi
verið á rökum bygðar, og gegn óskum hinnar íslenzkuþjóðar.
Höf. gerir lítið úr staðhæfingum Melsteðs, að engin
rödd á Islandi, »sú er að nokkru sé merk eða metandi«,
muni fallast á breytingartillögu Christensens um að fjölga
alþingismönnum svo, að þeir yrði 48, og heldur því fast-
lega fram, að Island þarfnist sterklega fjölmennara þings.
Loks getur hann þess, að það sé ekki kynlegt þó menn
hafi um langan aldur fundið til óheilla þeirra sem öllu
Islandi, landstjórn þess og framförum standi af því, að
stjórnin sé óþjóðleg, ókunnug öllu ásigkomulagi og háttum
lands og lýðs, þar sem ekki einu sinni sé séð um, að ís-
lenzkir lögfræðingar geti á háskólanum aflað sér nokkurr-
ar þekkingar á hinum frábrugðnu lögum landsins og stjórn-
arskipun. Höf. kveðst ekki kippa sér upp við það, þó
Melsteð sé ekki mótfallinn málablendingnum á alþingi og
hirði ekki um að þingið verði háð í heyranda hljóði, því
hvorttveggja komi ágætlega heim við hinn »óþjóðlega skoð-
unarmáta hans á máli þessu«.
Rithöfundur einn er nefndist »Ven af Island« varð til að
svara þessari grein »íslendings« í Berlingi1) og halda uppi
vörn fyrir Pál Melsteð og aðgjörðir embættismannanefndar-
innar í skólamálinu, spítalamálinu og alþingismálinu. Kveðst
höf. vilja benda á með hvílíku ranglæti, að hann ekki segi
gapaskap, »íslendinger« hafi fundið að aðgjörðum Melsteðs
i alþingismálinu. Telur hann óhætt að skjóta því undir álit
hvers óhlutdrægs manns, hvort eða að hve miklu leyti megi
sjá á aðgjörðum Melsteðs í þessu máli, að hann hafi trassað
að búa sig undir starf sitt, og ber engan kvíðboga fyrir að
*) Nogle Bemærkninger ved. en ,,Isiæn<lingers“(!) Svar paa Kam-
merraad Melsteds Bemærkninger om Althingssagen, Berlingske Tid-
ende Nr. 192, 193, 194, 196 (21., 22., 23., og 25. Juli 1843). - Fjórir
þættir 52—64. hls.