Skírnir - 17.06.1911, Síða 147
Jón Sigurðsson og Bókmentafjelagið.
243
bindi var lengur á leiðinni; kom 1. hefti þess út 1862 og
árið 1878 auðnaðist Joni að lúka við bindið. í því á
hann, að nokkru leiti með aðstoð Þorvalds Bjarnarsonar:
Söguþátt um Gottskálk Keniksson o. fl., söguþátt um
Skálholtsbiskupa firir og um siðaskiftin, þátt og ættar-
tölu ögmundar biskups Pálssonar, og loks söguþætti og
ættartölur Jóns biskups Arasonar ásamt kvæðum Jóns
biskups. Um fróðleiksgildi þessara þátta vísa jeg til
áðurnefndrar ritgjörðar Finns Jónssonar. Þeir eru sjer-
staklega dírmætir flrir oss, því að þeir eru hin síðustu
heimildarrit til sögu landsins, sem Jón gaf út, nokkurs
konar kóróna á hinu stórmerka útgáfustarfl hans. Auk
þess bar Jón eina próförk af því, sem aðrir áttu 'í
bindinu, saman við aðalhandritin.
Uppástungan um, að fjelagið skildi gefa út islenskt
Fornbrjefasafn kom í upphafi frá Reikjavíkurdeildinni,
borin þar fram af Jóni ifirdómara Pjeturssini. Þar var
á fundi 23. ágúst 1854 samþikt fundaráliktun, er laut að
þessu, og tveim dögum síðar skrifaði stjórn Reikjavíkur-
deildarinnar Hafnardeildinni og leitaði samþikkis hennar1).
Málið kom til umræðu á fundinum 18. nóv. 1854 í Hafn-
ardeildinni og fjekk góðar undirtektir. Síðan fjekk Jón
Sigurðsson nokkurn stirk hjá stjórninni til að undirbúa
safn þetta undir prentun, svo að hann gat boðið fjelaginu
handritið flrir ekkert á fundi 18. des. 1855, enn fjelagið
tók að sjer að greiða prentkostnaðinn2). Firsta hefti af
firsta bindi þessa verks, sem Jón rektor Þorkelsson telur
»eitt af hinum mikilvægustu hjálparmeðölum til Islands-
sögu, sem út hafa komið«, var gefið út 1857, og auðnað-
ist Jóni að lúka við firsta bindið árið 1876. Enn eftir sig
ljet hann stórmikið safn til undirbúnings framhaldi verks-
ins alt til loka 18. aldar, og hefur það verið ómetanlegur
stuðningur firir þann mann, sem hjelt verkinu áfram
eftir Jón látinn, dr. Jón Þorkelsson ingra* * 8). Auk þess
‘) Sjá Fundabók og Brjefabók Keikjavikurdeildarinnar.
*) Minningarrit Bmf. 51. bls.
8) ísl. Fornbrífasafn II, formáli III.—IV. bls.