Skírnir - 17.06.1911, Side 196
292
Endurminningar um Jón Sigurðsson.
Ef stúdent, sera var kunnur Forseta mætti honum ein-
um á götunum, þá stakk Forseti oft hendinni undir arm hon-
um, sneri honum við og mælti: »Þér haíið ekkert að gjöra,
gangið þér með mér«. Enginn okkar mundi hafa skorast
undan þeim heiðri, þótt hann hefði haft mikið að gjöra,
sem gat komið fyrir að við hefðum. Eg varð oftar en einu
sinni fyrir þessum heiðri. Einu sinni þurfti Forseti að
kaupa regnhlif, þegar hann mætti mér, og áleit að eg væri
nú einmitt maðurinn til að vísa sér á góðan stað. Eg hélt
að staðurinn mundi vera á Austurgötu, og þar fórum við
inn. Stúlkan fyrir innan búðarborðið lagði 5 eða 6 regn-
hlífar á borðið. Forseti spurði um verðið, það var 7 eða
8 krónur, eg sá að honum líkaði lítt regnhlíf með því
verði, og fyrirlitningin fyrir 8 krónu regnhlífum skein í
dráttunum kringum munninn; hann bað um 15 kr. regn-
hlíf, stúlkan hafði enga, og á endanum varð hann að sætta
sig við regnhlíf sem kostaði 11 kr., en aldrei lét hann
mig gjalda þess, að hann fékk enga dýrari.
I öðru sinni sem Forseti mætti mér, stakk hendinni
undir handlegginn á mér og sneri mér við með sér, mætt-
um við aðmírál Suenson úti í Grönningen. Aðmírállinn
varð fyrri til að heilsa, og Forseti sagði mér, þegar eg
fór að tala um hve líkir þeir væru á fæti, að hann mundi
heilsa vegna þess. Þegar eg síðar sá son aðmírálsins,
gerði eg mér í hugarlund, að hann hafi hugsað að eg væri
sonur Forseta og furðað sig á því hve synir þeirra væru
báðir ljóshærðir.
Allir þessir göngutúrar enduðu hvað mig snertir á
sama hátt Forseti tók mig inn á eitthvert dýrasta kaffi-
húsið í Höfn, heimtaði listann yfir vínin, veitti stórt glas
af portvíni, sem ekki var hugsandi til að drekka nema
það kostaði 1 krónu, bauð vindla sem urðu að vera á 25
aura upp að 1 krónu, til þess að það gæti komið til mála
að líta við þeim. Fyrir utan dyrnar kvaddi hann mig
með virktum, vonaði að sjá mig næsta sunnudagskvöld
heima hjá sér, setti hattinn langt niður í hnakkann og
gekk létt og fjörlega heim á leið.