Norðurfari - 01.01.1849, Blaðsíða 97
TRELSIS HBEIFINGARNAR.
99
taðasta, svo hinar þjóðinnar hafa æflnlega ósjálfráðt borið virðingu
fyrir feim. Slovakar halda fast við þá og hata miklu meira ftjúð-
verja og Austurríksmenn enn Magyara; jijóðverjar búa á víð og
dreif í landinu og svo innanum Magyara, að hagur beggja er hinn
sami og því halda þcir líka með þeim; Rússínar eru óupplýstir
og þýðingarlausir, og Blökkumenn halda með þeim, sem þá geta
fengið þá með sjer Austurríkisstjórnin hafði því ei nema Króata
og Serba, sem hún gal búist við að sjer mundi takast ad siga
á Magvara, því þeir vissi hún víst að hótuðu þá. Og þó gat
hún ei fullkomlega reitt sig upp á alla Serba, því miklu mestur
hluti þeirra er griskkatólskrar trúar (BaizenJ og hatar eins bræður
sina af rómversk-katolskri trú eins og Króata, jijóðverja, Austur-
ríkismenn og Magyara sjálfa. En á Króata mátti hún æfinlega
reiða sig. Hjá þeim hafði maður nokkur Dr. Loðvík Gay í langan
tíma gefið út blað sitt í Agram, Daniska Illyrska, og verið að
bera sig að vekja hjá mönnum löngun eptir hinu mikla suður-
slafneska ríki, sem átti að ná yfir Bulgaríu, Bosníu, Servíu, Dalma-
zíu, Illyríu, Króazíu, Slavóníu o. s. frv. Hvort honum hafi
tekist að sannfæra Metternich um að lán Austurríkis væri undir
því komið, að afi Magyara væri brotið vitum vjer ei, cn það
er víst að furstinn gerði þá undantekning frá prentbanninu með
Dr. Gay, að hann gaf honum einkaleyfi til að skamma Magyara
út í blaði sínu eins og hann vildi; Króata þóttist hann svo hvort
sem heldur var æfinlega geta haft í hendi sjer. Dr. Gay notaði
sjer nú líka vel af þessu leyfi og espaði Suður-Slafa sem bezt
hann gat á móti Ungverjum, sem hann aldrei kallaði annað enn
“hina siðlausu Tartara;” annars er það líka almælt að hann hafi
með frarn verið undirstunginn af Rússa keisara, sem vel skyldi
að honum og þrælkan hans væri mestur háski búinn af nágrenni
hins frjálsa Magyaralands. Króazía sjálf er dálítið konungsríki,
sem í 700 ár hefur verið sameinað við Ungverjaríki og sent full-
trúa úr hinum 3 þingum sínum til alsherjarþingsins t Prezsborg;
en fyrir landstjórn allri hefur að fornum sið staðið svonelndur
banus*, sem hinir ungversku konungar hafa tilsett bæði yfir
Króazíu og Slavóníu. Hefðu nú Króatar ætlað að nota sjer af
byltingonum til að ná aptur frelsi sínu þá gætum vjer ckkert haft
á móti tilraunum þeirra, en það gerðu þeir ei, eða frelsislöngun
þeirra er svo undarlega blönduð við þrældómsfýsn, að menn geta
ei annað enn haft á móti þeim; því þeir seldu sig á endanum
til að vera viljalaus verkfæri einvaldsins og harðstjórnar Austur-
ríkis. Dr. Gay sá það fijótt að honum mundi örðugt, að koma
fram vilja sínum þegar Magyarar væru búnir að styrkja stjórn sína,
oghannásetti sjer því að hætta á að senda landa sína berlega móti
þeirn. Hjá ráðaneytinu kom hann því til leiðar í Apríl að Jella-
sins, þJ BJökkuinenn fyrir austan þít og nokkuð vlðar, hjerumbil
70001X); Gyðingar ern um 300000 og þessutan búa þar líka Ermskit
menn, Grikkir, Ziegunar o. s. frv.
* t*að er dregið af hinn siafneska orði bojan, sem þýðir herra.
g2