Eimreiðin - 01.10.1930, Blaðsíða 75
eimreiðin
HÉRAR
379
konar illþýöi ásækir hann, bæði rándýr og ránfuglar. í al-
býðuvísu einni í Svíþjóð segir svo:
Manskor, hundar, vargar, ravar,
katlor, márdar, vesslor, örnar,
korpar, krakor, hökar, lo
lamna haren ingen ro.
Skata, uv ej att förgata,
alla, alla honom frata. ■)
Það er með öðrum orðum engin sú ketæta til, að hún hafi
ekki hérann að æti. Og eina varnartækið, sem hann hefur
9egn öllum þessum óvinum sínum, er hræðslan, flóttinn. Og
svo er hann hafður að háði fyrir það, veslingurinn. I út-
lendum málum eru ýmis orðatiltæki orðin til í sambandi við
hérann, og öll á einn veg að merkingunni til. I Svíþjóð er
falað um að »grípa til héravopnsins*, þ. e. að leggja á flótta;
' Þýzkalandi er sagt, að einhver »sofi eins og héric, þ. e.
þori ekki að sofa, eða sofi með öðru auganu, o. s. frv.
Maður sér heldur varla svo mynd af héra, að hann sé ekki á
flótta. En þess má þá líka geta héranum til lofs, að þetta
lífsnauðsynlega varnartæki hans er orðið að íþrótt, meiri en
iafnvel hjá nokkru öðru dýri. Hann lætur aldrei koma að sér
óvörum, jafnvel ekki sofandi. Verði hann var við eitthvað
uggvænt, er hann þotinn upp úr bæli sínu, eitthvað þangað,
er hann heldur sig vera tryggari eða geti frekar vilt óvinin-
um sýn. Annars er hann víða um heim mjög samlitur jörð-
unni, á hvaða tíma árs sem er, og treystir mikið á, að hann
sjáist ekki. Á veturna, þegar snjór er og spor hans verða
rakin, gengur hann ýmsa króka áður en hann Iegst í bæli
sitt, og stillir svo til, að hann sjái yfir sporin. Þetta gerir
hann til þess að villa þá, er rekja kynnu sporin. Nálgist ein-
hver óvinur, t. d. refur eða hundur, og fari eftir sporunum
1) Menn, hundar, úlfar, refir,
kettir, merðir, víslur, ernir,
hrafnar, krákur, fálkar, gaupa,
sjá hérann aldrei í friði,
að ógleymdum skjó og uglu,
allir, allir éfa hann.