Eimreiðin - 01.10.1930, Blaðsíða 81
EIMREIÐIN
DR..ANNIE BESANT
385
þátt sú stórmerka kona hefur átt í því starfi. Mér er nær að
halda, að þeir ábyrgðarlausu gasprarar, sem nú lætur hæst í
1 bókmentaheimi vorum, mundu hugsa sig um að ata slíka
honu auri, ef þeir hefðu þekkingu á, hve umfangsmikið lífs-
starf hún hefur að baki — hver hetja hún er í framsóknar-
baráttu mannkynsins.
Þegar þær stefnur voru í barnæsku og áttu erfitt uppdráttar,
sem nú þykja sjálfsagður liður í framfaraviðleitni þjóðanna,
var dr. Annie Besant fremst í flokki þeirra bardagamanna,
sem fyrst mótuðu þær. Hún barðist fyrir, að kjör verkamanna
yrðu bætt, fyrir kvenréttindum, fyrir almennri uppfræðslu,
fyrir endurbættri skólalöggjöf. Hún var meðal hinna djörfu
forgöngumanna, sem fyrst hreyfðu fæðingatakmörkunum. Hún
var meðal hinna fremstu, þegar jafnaðarstefnan var að berjast
s>na fyrstu baráttu. Rétttrúnað og stirðnaðar kennisetningar
kirkjunnar hefur hún ráðist á af meira afli en flestir aðrir.
Þjáningar hennar og sigrar fyrir fimmtíu árum síðan voru
fæðingarhríðir þeirra skoðana og stefna, sem nú eru ríkjandi
1 heiminum. Nú eru skoðanir manna bæði frjálsari, mannúð-
legri og víðsýnni en áður var. Hún hefur átt sinn mikla þátt
1 því, að menn taka nú eðlilegri — mannlegri afstöðu til
ftestra mála, en gert var á þeim tímum.
Annie Besant varð snemma þjóðkunn fyrir mælsku sína og
andríki. Var enginn hennar jafningi sem þróttmikill fyrirlesari.
Létu sumir svo um mælt, að einkennilegt væri það afl og sá
þungi, sem fylgdi ræðum hennar, því útlit hennar og fas alt í
duglegu lífi bar vott um mýkt og mildi. En er hún kom í
Tæðustól var engu líkara en að hún ummyndaðist.
Rithöfundurinn Thomas Mann heyrði hana tala árið 1875:
lFrú Besant gagntók mig. Hve dásamlegt vald hún hafði
Yfir röddinni! Hve hún lagði alla sál sína í málefnið, sem hún
þarðist fyrir! Ást hennar á þeim, sem þjakaðir eru — áhugi
hennar fyrir, að öll börn megi njóta heilbrigðara uppeldis —
alt þetta varð til þess, að ég ásetti mér að kynna mér betur
rökin fyrir skoðunum hennar*.
Alla sína miklu hæfileika og mælskuþrótt tók hún í þjón-
ustu mannúðarstarfsins. Því afstaða hennar til stjórnmála var
fyrst og fremst mannúðarafstaða. Stjórnmálin sjálf, með öllu
25