Eimreiðin - 01.10.1930, Blaðsíða 122
426
RAUÐA DANZMÆRIN
EIMREIÐIN
skylt að koma áleiðis til saklausrar dóttur ráðleggingum móður,
sem þekti heiminn eins vel og Mata Hari gerði. Að minsta
kosti er eðlilegt að skoða þennan greiða sendiherrans eins
og líknarverk, því hann var alls ekki óvinveittur Frökkum.
En áður en þetta gerðist, höfðu Frakkar komist að því, að
sumar sendisveitirnar í París misnotuðu réttindi sín, og höfðu
þeir því sett menn til höfuðs þeim sendisveitum, sem grunaðar
voru um græzku, en meðal þeirra var hollenzka sendisveitin.
Þegar Mata Hari bað fyrir bréf sitt, var fyrir á sendisveitar-
stöðinni þaulvanur leynilögreglumaður, sem hafði það hlutverk
með höndum að rannsaka allan póst sendisveitarinnar. Hann
vissi um álit það, sem II. deild hafði á Mötu Hari og ákvað
að opna bréf hennar, tók afrit af því og fékk afritið í hendur
sérfræðingum til rannsóknar. Bréfið sýndi, hve vel Mata Hari
hafði leikið hlutverk Delílu í gervi Maríu Magdalenu. í því
voru afarþýðingarmiklar upplýsingar um franska njósnara og
tilraunir þeirra tii að komast að því, sem gerðist bak við
herlínu Þjóðverja.
Þjóðverjar höfðu orðið þess varir, að franskir njósnarar
komust öðru hvoru inn fyrir þýzku herlínuna, en það var
þýzka njósnarliðinu hreinasta ráðgáta, hvaðan og hvernig þessir
frönsku njósnarar komu. En einn góðan veðurdag var gátan
ráðin. Stúlka ein, sem var vel þekt í Brússel undir nafninu
Angále, hafði flúið þaðan, þegar Þjóðverjar tóku borgina, en
fyrir fortölur Bandamanna hafði hún fallist á að hverfa aftur
til Brússel og starfa þar sem njósnari fyrir Englendinga. En
síðar snerist hún í lið með Þjóðverjum, og þegar þýzku liðs-
foringjarnir í Brússel heyrðu sögu hennar, varð þeim meira
en lítil forvitni á að fá að vita, hvernig hún hefði sloppið í
gegnum herlínu þeirra og til Brússel aftur. Hún skýrði þá
frá því, að hún hefði verið flutt í flugvél yfir herlínuna og
stokkið með fallhlíf út úr flugvélinni, er yfir línuna var komið.
Þessar upplýsingar vörpuðu Ijósi yfir þá ráðgátu, sem þýzka
njósnarliðið hafði verið að glíma við. Nú varð það alt í einu
Ijóst, hvernig njósnarar Bandamanna komust inn fyrir þýzku
herlínuna.
Bandaríkjamenn munu fyrstir hafa notað þá aðferð að
lenda njósnurum úr flugvélum á hersvæði óvinanna. Það mun