Eimreiðin - 01.10.1930, Blaðsíða 128
432
RAUÐA DANZMÆRIN
EIMREIÐlN
að dulskeyti gátu ekki komið að haldi. Það eina sem dugði
var nákvæmt kort af staðnum og Iandinu umhverfis. En meðal
aðstoðarmanna Louise voru nokkrir, sem gátu teiknað kort
með sæmilegri nákvæmni, og Ijósmyndara hafði hún, sem gat
tekið smækkaða ljósmynd af kortinu. Þannig tókst að gera
kortið á stærð við stóran títuprjónshaus. En þetta litla kort
varð samt sem áður að fela vandlega. Og það var gert með
því að losa gler úr gleraugum, setja kortið innan í glerum-
gerðina og setja síðan glerið í umgerðina aftur. Á þennan
hátt komst kortið yfir landamærin og í hendur Englending-
um. Afleiðingin varð sú, að þeir hófu gagnskothríð með svo
góðum árangri, að annar eins hafði ekki fengist áður í allri
heimsstyrjöldinni.
Þjóðverjum var það ljóst, að þeir urðu að gera alt, sem
unt var, til að koma í veg fyrir hinar víðtæku njósnir óvin-
anna í Belgíu. Og þeir völdu Mötu Hari sér til aðstoðar við
það verk. Hún var send til Parísar aftur og henni skipað að
afla allra nauðsynlegra upplýsinga til þess að takast mætti að
uppræta njósnasamtökin í Belgíu. Það kom auðvitað ekki til
mála að senda hana yfir England, eftir það sem komið hafði
fyrir hana á leiðinni til Hollands. Hún var nú látin fara yfir
Svissland, og mættu henni engar tafir eða hindranir á landa-
mærunum. Mun hún hafa átt það því mest að þakka, hve
marga vini hún átti meðal æðstu embættismanna víðsvegar
um Evrópu, sem jafnan voru reiðubúnir að greiða götu hennar.
Ef Mata Hari fékk sjálf að ráða gerðum sínum, átti hún
engan sinn líka að kænsku og hyggindum. En nú var hún
aðeins orðin einn liðurinn í flókinni áætlun. Þeirri áætlun var
stranglega fylgt, og af þeirri ástæðu fékk snild hennar ekki
notið sín til fulls. Til þess að skilja athafnir hennar eftir að
hún kom til Parísar aftur, er nauðsynlegt aðj.kynnast einu
herbragði njósnara betur. (Framh.).