Uppeldi og menntun - 01.01.2001, Side 26
ORÐRÆÐUR UM ÁRANGUR, SKILVIRKNI OG KYNGERVI VID STJÓRNUN
er eitt... Mér hefur alltaf fundist pað frekar kostur að vera kona sérstaklega gagnvart
karlmönnum ... Kannski eru konur setn stjórnendur svona opnari og ftísari til að ræða
málin og taka tillit til fleiri sjónarmiða en sinna eigin. Mérfinnst konur svona sveigjan-
legri og pær koma kannski ekki fram af sama átoríteti og karlar . . . Einn vandi kven-
stjórnenda er að konur viðurkenna ekki átorítet kvenstjómenda til jafns við karlstjórn-
enda, tala íandakt um karlstjórnendur en viðurkenna síður vald og árangur kvenstjórn-
enda ... og líta frekar á pær sem samkeppnisaðila ... pær eru umtalsverri og velta sér
upp tír einhverjum aukaatriðum ... Það sem maður vill er að störfmanns, árangur og
framkoma séu metin að verðleikum ... og pað séu lagðir á pau sömu mælikvarðar og á
störf karla.
Orðræðan um kyngervi er áhrifamikil að mati Láru. Hún telur það að mörgu leyti
kost að vera kona í starfi, lítur á starfið sem forgangsatriði í lífinu og að konur séu oft
sveigjanlegri sem stjórnendur en karlar. Hún er þó óhress með afstöðu kvenna sem und-
ir- og samstarfsmenn kvenstjómenda og finnst því karlar að sumu leyti þægilegri sam-
starfsmenn.
Inga sem einnig er stjórnandi á háskólastigi telur sömuleiðis að konur sem stjórn-
endur séu opnari, sem sé jákvætt. Mikilvægast sé að muna að láta hagsmuni stofnunar-
innar ávallt ganga fyrir og láta ekki tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur. Hún, eins og
Jóna og Lára, leggur áherslu á sveigjanleika og hreinskilni. Einnig að það sé skemmtilegt
í vinnunni. Eins og margar fleiri sagði Inga konur þurfa að leggja harðar að sér en karla
til að ná jafn langt og hún tók dæmi af erfiðleikum karla við að viðurkenna konur sem
yfirmenn og tilburði þeirra til að setja þær þrepi neðar í virðingarstiganum í samskipt-
um. Hún taldi hins vegar gott að vinna með konum sem undirmönnum; þær væru á-
reiðanlegar í starfi þó að vissulega geti böm verið til trafala en einnig makarnir:
Konur purfa oftar en ekki að vera duglegri en karlmennirnir, maður liefur oft séð pað.
Leggja sig meira fram, vinna meira og lengur og sýna loyalítet... Ég réði eina (einstæða
rnóður) nýlega og sagði við hana „Eg bara trúi pvíaf reynslu minni... að sem einstæð
móðir i' metnaðarfullu starfi geri maður allt sem maður getur til að komast ívinnuna og
leggur oft miklu meira á sig til að hlutimir gangi" ... en pað getur auðvitað verið kost-
urfyrir framgang á vinnumarkaði að vera ekki með börn ... ogað vera ekki að drösl-
ast með einhverja ómögulega menn, pað er svo orkufrekt - bara orkusuga. Þeir bara
skipuleggja allt út frá sjálfum sér og ...
Orðræðan um kyngervi á háskólastigi birtist á margvíslegan hátt. Jóna gerir lítið úr
mikilvægi hennar, að minnsta kosti á yfirborðinu, en segir hana líklega skipta máli fyrir
ýmis smáatriði og væntingar. Inga og Lára segja kynferði skipta máli, en á mjög mis-
munandi hátt, samanber áðumefndar hugmyndir um menningarbundna kynjamis-
munun. Inga telur karla ekki meta konur að verðleikum, jafnvel vanvirða þær, en kon-
ur séu góðir samstarfsmenn. Lám finnst konur hins vegar hæfar og sveigjanlegar sem
stjómendur, en þær komi oft ekki fram af nægum myndugleika þannig að séu því oft
ekki viðurkenndar af undir- eða samstarfsmönnum, einkum konum.
Lára er ekki ein um að gagnrýna aðrar konur, finnst þær stundum hefta sig í starfi.
24
J