Uppeldi og menntun - 01.01.2001, Side 184

Uppeldi og menntun - 01.01.2001, Side 184
GUÐSMYND OG TRÚARHUGSUN BARNA OG UNGLINGA hliða þessu talar Freud um hina félags- eða menningarlegu mynd af Guði sem teng- ist þegar fram líða stundir hinni persónulegu. Þannig byggir einstaklingurinn smám saman upp mynd sína af Guði. En það er ætíð hin persónulega ímynd sem ræður mestu að mati Freuds og hún byggir á reynslu barnsins af föður sínum. Guðsmynd- in tekur loks fram myndinni af föðurnum bæði hvað varðar mátt, kærleika og náð og verður eins konar upphafin föðurímynd.2 3 Eins og við mátti búast ollu kenningar Freuds miklu uppnámi og þær mættu gagnrýni og andstöðu margra guðfræðinga og sálfræðinga.’ Það leið líka drjúgur tími þar til trúarlífssálfræðingar tóku kenningar hans upp til nánari útfærslu en það gerði Erik H. Erikson í lok 6. áratugs 20. aldar. Erikson stundaði þó ekki frekar en Freud kerfisbundnar rannsóknir á mótun guðsmyndarinnar en setti hugmyndir sínar fram í tengslum við kenningar um þró- un sjálfsins.4 Hann taldi að fyrsta reynsla einstaklingsins af kærleika, trausti, um- hyggju og vernd myndaði grunninn að síðari guðsmynd. Þar skiptir fyrsta tilfinn- ingareynsla barnsins af samskiptum við foreldra, bæði föður og móður, miklu máli því hún er rótin að getu einstaklingsins til að treysta öðrum (sbr. kenningu hans um grundvallartraustið - „basic trust") og mynda kærleiksríkt samband við annan ein- stakling.5 6 Slíkt samband getur verið við foreldra, ástvin eða Guð. Erikson taldi þannig að bæði reynslan af móður og föður hefði áhrif á guðsmyndina. Móðurí- myndin skiptir verulegu máli vegna hins nána sambands móður og barns fyrstu árin en föðurímyndin er að hans mati einnig mikilvæg vegna þess hlutverks sem faðir- inn gegnir í lífi barnsins á árunum fram að skólagöngu. Erikson bendir á í þessu sambandi að tengsl barns við föður eru annars konar en tengslin við móðurina. í því sambandi talar hann um hið trausta og nána tilfinningasamband barns og móður í bernsku og kallar reynslu barnsins af því nána sambandi „hina heilögu návist".'1 Það tengist svo trúarlegri reynslu á fullorðinsárum af ósýnilegri návist Guðs. Erikson nefnir einnig innbyrðis samband barns og móður augliti til auglitis sem hjálpar barn- inu að greina sig frá móðurinni. Hann telur fólk leitast við að upplifa reynsluna af því að vera augliti til auglitis í helgisiðum trúarbragðanna.7 Loks talar hann um reynslu barnsins af því að vera yfirgefið af móður sinni og því að þekkja hana aftur. Aðskilnaðurinn skapar þá tilfinningu að móðirin sé fjarlæg og það leiðir til kreppu og skilur eftir sig þrá eftir örygginu í faðmi móðurinnar. Lausn kreppunnar felst í því að barnið sér móðurina á ný augliti til auglitis. Það uppgötvar aðgreiningu sína frá móðurinni um leið og það öðlast vissu um návist hennar og umhyggju.8 Hlutverki föðurins lýsir Erikson aftur á móti þannig að hann er hinn sterki og samband hans við barnið er ekki eins sjálfgefið og samband móðurinnar. Kærleikur föðurins til barnsins er því að hans áliti annars konar en móðurinnar. Faðirinn hefur 2 Sjá nánar Freud, S.1938 (1913), bls. 914-930 og 1961(1927), bls. 180-206. 3 Yfirlit yfir gagnrýni á kenningar Freuds er t.d. að finna hjá Geels, A. & Wikström, O. 1993, bls. 105-107 og hjá Rizzuto, A-M. 1979, bls. 26-29. Freud hefur m.a. verið gagnrýnd- ur fyrir að draga of víðtækar ályktanir af viðtölum við sjúklinga sína auk þess sem bent hefur verið á að hans eigin reynsla í bernsku og lífsviðhorf hans sem fulltíða manns hafi litað kenningar hans. Eftir stendur þó að hann beindi athygli manna að áhrifamætti for- eldra (föður) við mótun guösmyndarinnar. 4 Þekktar eru þó greiningar hans á persónuleika Marteins Lúthers og Mahatma Gandhis, sjá Erikson, E.H. 1958 og Eriksson, E.H. 1969. 5 Erikson, E.H. 1958, bls. 113-114 og 1959, bls. 57-67. 6 Erikson, E.H. 1958, bls. 114-115, sbr. Geels, A. & Wikström, 0.1993, bls. 107-109. 7 Erikson, E.H. 1958, bls. 111. 8 Erikson, E.H. 1958, bis. 248-249.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.