Hlín - 01.01.1951, Síða 28
26
Hlín
svo lánsöm að hafa í sjer sjálfri það, sem helst þarf til að
lifa lífinu rjettilega, eða svo að vel farnist. Og þrátt fyrir
þröng kjör og erfiða vinnudaga, gekk alt vel. Með stakri
geðprýði og bjartsýni á lífið og tilgang þess kemst hún
vel út úr öllum vanda og sigldi skipi heilu í höfn að end-
uðu vel unnu æfistarfi. Una eignaðist með manni sínum
níu börn. Þrjú þeirra dóu þegar ung að aldri, en sex
þeirra eru uppkomin: Alfreð, Jóna, Sólveig, Magnús,
Sölvi og Aðalbjörg.
A Unaósi bjó svo Una til dauðadags, fyrst með manni
sínum, til 19. júlí 1933, er hún varð fyrir þeirri þungu
að missa hann af slysförum. En þrátt fyrir hið stóra sorg-
arský, sem um langan tíma á eftir mun hafa glapið henni
sýn á hinar björtu hliðar lífsins, tókst henni að yfirstíga
erfiðleikana með þolgæði og bjartsýni. Það er gott að
geta greint geisla að baki skýja, þegar úr vöndu er að
ráða. Og áfram hjelt hún að settu marki með hjálp góðra
manna og barna sinna, sem fljótt komu henni til hjálpar.
Una var ein þeirra fórnfúsu og kærleiksríku kvenna, sem
fylla hús sín og umhverfi ástúð og nærgætni. Ein þeirra
kvenna, er var Ijúfara að hlýða rödd hjartans en fyrir-
skipunum heilans. Hún hugsaði ekki ávalt fyrst um, hve
mikið hún fengi, peningalega sjeð, fyrir það sem hún
gerði gott. Hún var viss um borgun fyrir það. Og eflaust
fær hún góð laun, sem henni ber með rjettu. Eitt er víst,
að það umhverfi, er ekki fær notið yls nje hlýju frá geisl-
um þeirrar göfugmensku, sem skín frá sálum slíkra
kvenna, það fer mikils á mis. — Við Borgfirðingar höfum
um margra ára skeið notið frábærrar gestrisni óeigin-
gjarnrar fyrirgreiðslu frá þessari mætu samferðakonu og
börnum hennar. Þess vegna þótti okkur tilhlýðilegt að
sýna minningu hennar verðskuldaðan hlýhug með stofn-
un þessa minningarsjóðs. Blessunarstarfa hennar og
minningar mun æ verða minst með þakklæti og virðingu.
—• Una var stödd á Akureyri hjá Jónu dóttur sinni, er hún
andaðist 21. september 1949.