Hlín - 01.01.1951, Side 144
142
Hlin
ur, skipafer'ðir óhagstæðar, en flugferð um Reykjavík vildi hún
ekki leggja upp í. Við sendum henni bestu kveðjur fundarins.
— Þá höfum við boðið hingað sænsku konunni í Lundarbrekku
í Bárðardal, sem hefur gerst íslensk sveitakona. Óskum hana
hjartanlega velkomna til okkar. — Þá er það mjög ánægjulegt,
að frú Helga Kristjánsdóttir hafði tækifæri til að koma norður
til okkar og flytja erindið um heimilisiðnað, sem hún flutti á
Landsþinginu. — Svo er hjer stödd merk kona og áhugasöm um
fjelagsmál, frú Viktoría Bjarnadóttir, frá Rvík, hún var hjer á
Stórstúkuþingi, en er nú hjer hjá okkur, og vill hafa tal af
konum. (Eftir að skýrslan var flutt, sótti formaður K. í., Guð-
rún Pjetursdóttir, fundinn. Var henni tekið með fögnuði).
Sendiherra Dana, frú Begtrup, sem var með okkur í Höfða-
kaupstað í fyrra, ætlaði að koma á þennan fund, en þegar til
kom voru embættisannir svo miklar, að hún sá sjer ekki fært
að koma.
Um fjármál Sambandsins er ekki margt að segja. — Fjárhag-
urinn er heldur þröngur, þessvegna vorum við að brjóta uppá
basarnum. Við höfum engan skatt lagt á þessar 70 fjelagsdeild-
ir, þær hafa nóg með sig. — En okkur langar til að starfa dá-
lítið meira en að hafa fundina og skifta styrk þeim, sem við fá-
um frá K. f. til sambandanna. (Við greiðum á árinu 500 kr. til
hvers sambands, (4000 kr.). Við styrktum lítillega tvær konur
til utanfarar á árinu. — Við álitum, að það væri sjerstaklega
þarft og gott að stjórnin gæti heimsótt aðalfundi annara kven-
fjelagasambanda, þó í fjarlægð sjeu. Ennfremur að Sambandið
eignist safn af vel gerðum handavinnumunum, sem nota mætti
til sýninga.
Það væri gaman að geta gert fleira, margt fleira, því eins og
þið vitið vil jeg láta Samband norðlenskra kvenna lifa og starfa,
það hefur tilverurjett. Við Norðlendingar erum ríki í ríkinu,
það hefur lengi verið sagt, látum svo vera, ef rjettur skilningur
er lagður í orðið: Látum ekki okkar hlut eftir liggja í góðum
störfum fyrir land og lýð.
Jeg íreysti ykkur til að láta Samband norðlenskra kvenna
lifa og starfa áfram.
Halldóra Bjarnadóttir.
Fjelagsheimili.
Síðan lögin um fjelagsheimili gengu í gildi hafa 34 heimili
notið styrks úr sjóðnum, þaraf 27 ný.