Blik - 01.06.1972, Síða 156
dugnaðarkona, þrekmikil og þraut-
seig.
Satt að segja sé ég ekki betur, en
hún beri enn þrekið með sér, svo
öldruð sem hún er oröin.
Blik árnar hinni öldruðu konu
allra heilla. Þ. Þ. V.
r
Avarp til Vestmannaeyinga
Að þessu sinni birti ég hér í Bliki
1. kafla hinnar fyrirhuguðu Minja-
skrár Byggðarsafns Vestmannaeyja.
Ég stefni að því að geta hirt fram-
hald hennar næsta ár (1973) og þá
megniö af henni, sem ég á þegar í
uppkasti.
Þessi 1. kafli skrárinnar, sjávarút-
vegurinn, veitir ykkur nokkra hug-
mynd um þaö, hvernig skráin er
hugsuð í heild. Hún skal geyma nöfn
munanna og nokkur orð um nota-
gildi þeirra, söguleg drög, þegar þess
er kostur. En jafnframt skal skráin
vera safn dálítilli minnisvarða yfir
það fólk, sem hér hefur lifað, starfað
og skapað sögu byggðarlagsins á
liðnum tímum, svo langt sem mun-
irnir gefa tilefni til þess. Nöfn þeirra
Eyjabúa, sem enginn hlutur er til
minnis um í Byggðarsafninu, verða
vitaskuld ekki nefnd í minjaskránni.
Þetta minnisvarðasafn vildi ég
biðja ykkur hér með að gera sem
allra fjölþættasta með mér með því
að afhenda Byggðarsafninu muni,
sem geyma mættu nöfn karla og
kvenna og söguleg drög.
Allir munir, sem berast Byggðar-
safninu fyrir ágústlok í sumar, verða
skráðir og birtir í framhaldi minja-
skrárinnar í Bliki næsta ár.
Vestmannaeyingar! Með sameigin-
legu átaki höfum við mótað og mynd-
að Byggðarsafn kaupstaðarins, skap-
að það. Og með sameiginlegu átaki
á þessu sumri getum við eflt það og
aukið, fjölgað þar merkum, söguleg-
um munum. Mér er það ljóst, að til
þess þarf nokkurn fórnarhug, fórna
munum, sem e. t. v. eru sumum nokk-
urt augnayndi. En minnumst þess þá,
að fórn eykur manngildið, eflir sálar-
lífið, stækkar manninn og merlar
minningarnar, þá tímar líða. Ekki er
heldur nokkur vissa fyrir því, að
komandi kynslóð eða kynslóðir
kunni að meta geymda gripi nema þá
helzt á söfnum, þar sem skýringar
fylgja þeim og „þeir eru ekki fyrir
heima“. — Minjaskráin verður sér-
prentuð. Byggðarsafnið á þegar mik-
ið af gömlum bókum og sögulegum
skrám. Skrá um þá eign verður prent-
uð síðar.
Goðasteini, 1. jan. 1972.
Þorsteinn Þ. Víglundsson
154
BLIK