Skírnir - 01.01.1886, Síða 46
48
ENGLAND.
höfuðborgum eru á borð við það, sem erindrekum hinna meiri
ríkja er í laun goldið.
Vjer bætum þvi hjer við það, sem «Skimir» sagði í fyrra
af Gordon og afdrifum hans í Khartum, að safn minnisblaða
—. allt eða mestallt skrifað á hraðfrjettablöð — komst í hendur
Englendinga (Wilsons hershöfðingja), og nær yfir timann frá
10. sept. til 14. desembers (1884). f>að sem hann hafði skráð
um viðburðina og tímann á undan, hafði Stewart haft með
sjer, yfirliðinn, sem Súdansmenn drápu á ferðinni norður. það
sem á minnisblöðunum stóð er nú komið i bók með 650 blað-
siðum. f>að eru að miklum hluta stuttar sögur og athugasemdir,
gagnorðar, napurlegar snuprur til stjórnarinnar eða aðfinningar
við alvöruleysi hennar og ráðafálman i öllum tiltektum. f>að eru
kaldahlátrar upp frá eldheitu brjósti. Hann skopast að skeyt-
unum frá Baring, umboðsmanni stjórnarinnar i Kairó, og öðr-
um manni, Egerton að nafni. «þeir vildu», segir hann, «fyrir
alla rnuni vita, hvenær vistirnar hjá mjer mundu verða á þrot-
um, og mjer þótti þvi rjett við það að likja, ef einhver stæði
þar á strönd með bjargarbelti i höndum sjer, sem vinur hans
væri að drukkna fyrir utan lágarðinn. Hann sjer hann fara
tvisvar í kafið, og skjóta tvisvar upp, og svo kallar hann út til
hans: biddu við kæri! og segðu mjer til þegar þú ert að
þrautum kominn, jeg skal þá varpa línunni út til þín, þvi ná-
kvæmnina verður við allt að hafa og hún er mjer tömustb
Hann talar um Mohammed Achmed — mahdíinn, sem var —
með mestu fyrirlitningu, og tekur þvert fyrir, að hann hafi
trúað sjálfur á umboð sitt af Guðs hálfu. Hann hefði í raun og
veru ekki annað verið enn falsari og loddari, og á einum stað
talar hann um, hver læging það sje, að verða að lúta í lægra
haldi fyrir slíku varmenni. það hafi verið eitt af brögðum
hans, að hann hafði piparkorn undir neglum sjer, og brá svo
fingrunum upp i augun, þegar honum lá á og hann vildi tár-
ast og láta menn sjá hver vandlætingar hiti og alvara honum
bjó i brjósti. «Jeg vil ráðleggja ráðherrum drottningarinnar»,
bætir Gordon við, «að taka þetta bragð upp eptir mahdíinum,
þegar þeir þurfa að bæta úr skák fyrir sjer á þinginu eptir