Skírnir - 01.01.1886, Síða 49
FRAKKLAND.
51
merki Frakklands og forræði, en Tonkin fylla tölu þess eignar-
landa. Við þetta voru þó ekki öll kurl til grafar komin í mál-
inu og öllum þrautum ekki lokið þar eystra. Um samninginn
gerðist þras og hávaði á þinginu — já, og lengi var á því
klifað að stefna Jules Ferry fyrir ríkisdóm fyrir frammistöðuna,
þó af þvi yrði ekki. Flestum þótti förin ekki til fjár farin, en hitt
átti ekki við skap Frakka, að viðskiptunum við Sínlendinga
lauk heldur ófrægilega fyrir franska herinn. J>að jók þó mest
á kur manna bæði á þinginu og utanþings, er ný vandræða-
tíðindi komu frá Anam eða Hué, höfuðborg landsins, í byrjun
júlímánaðar. Frakkar höfðu fengið þeim hershöfðingja umboð
í hendur til landstjórnar eða tilsjár með stjórninni i Anam, sem
Courcy heitir, og skyldi hann taka sjer aðsetur i höfuðborginni.
Hann kom þangað í byrj. júlí með mikilli fylgiliðasveit og 800
hermanna, og bjóst við virðulegustu viðtökum. Nokkurar sveitir
af liði Frakka sátu og í kastala borgarinnar. Hann sá skjótt
að hjer var ekki allt trútt, og ráðherrar konungs höfðu ymsar
mótbárur frammi, er hann krafðist samfunda við hann. J>ann
5. skyldi hann á konungsfund ganga, en nokkru eptir mið-
nætti var allt á tjá og tundri í borginni, og herlið Anams-
manna — að sögn Courcys ekki færra enn 30,000 manna —
veitti aðsókn að kastalanum og sendisveit Frakka. Liðsveitir
Frakka veittu þegar snarplegt viðnám og neytti svo stórskeyt-
anna i kastalanum, að hinir hrukku undan, og innan kvelds
var borgin á valdi Frakka. Meðal þeirra sem á flótta lögðu
frá borginni var konungur sjálfur, drottningin og margir frændur
þeirra. Einn af prinsunum, Thu Yet, föðurbróðir (eða móður-
bróðir?) hins unga konungs — hann heitir Thoc-Uan — hafði
gengizt fyrir uppreisninni, og hafði hann konung á burt með
sjer og hjelt honum lengi á sinu valdi. Burtför þeirra með
fumi og fáti, því í höll konungs og öðrum húsum hirðarinnar
fannst stórmikið íje og ógrynni allskonar djásna og gersema,
sem prinsarnir eða hirðin hafði ekki sjeð sjer færi á undan að
koma. Innan útgöngu júlímánaðar hafði móðir konungs og
sumir prinsanna snúið aptur til Hué, og einn af þeim setti
Courcy fyrir stjórn landsins, og má vera, að það sje sá sami,
4*