Skírnir - 01.01.1886, Blaðsíða 121
4
TYRKJAVELDI. 123
syðra, og leysast sem fyrst af öllum kostnaði og vanda. Af
því sem greint er að framan af síðustu viðburðum í Balkans-
löndunum má sjá, að Tyrkjar hafa þar engar dáðir drýgt og
ekki þorað til neins af sjálfsdáðum að taka, en látið stórveldin
'hafa fyrir öllu að setja málunum. þeir drógu að vísu mikinn
her saman, og höfðu hann á verði bæði við Austurrúmelíu og
iandamæri Grikkja, en til atfara í Austur-Rúmelíu þorðu þeir
ekki að ráðast, þó sagt hafi verið, að Bismarck hafi viljað láta
þá sýna, að þeir væru ekki með öllu úr sögunni dottnir.
Aðrir segja reyndar, að þeir hafi hjer farið að ráði Englendinga,
sem sáu að Rússum var hjer ekki minnstur óleikur búinn, og
aptur aðrir, að Tyrkir hafi vakað yfir að Rússlandi og Austur-
ríki mundi nú þegar Ijósta saman. I hvorutveggja kann
nokkuð hæft að vera. Gagnvart Grikkjum, sem í langan tima
stæltu hnefana og Ijetu mjög ófriðlega voru þeir eins atgjörða-
lausir, og þó þeir hefðu óvígan her við landamærin o^pyrðu
til hans að kosta langt yfir efnin fram, þá ljetu þeir enn
stórveldin um allt umstangið, stíla stjórninni í Aþenuborg
áminningar, hóta henni hörðu og senda flota á verði til að
hepta ófriðinn. það getur verið, að Tyrkjar hugsi með sjer
sem fyr, að þeim standi á sama, hvort «hundurinn eti svínið
eða svinið hundinn», þegar kritsnar þjóðir etja oddum hver að
annari, en hitt er hségt að sjá, að þeir hafa látið gera sig'
■ófullveðja og vilja nú sem fæst undir sjálfum sjer eiga.
það er ekki furða, þó í löndum Tyrkja verði mörg veðrin
í lopti, og að hjeðan berizt margar flugufregnirnar. Hvað
eptir annað er sagt af uppreisnartilraunum i Macedóniu, Albaníu
eða á Krit. Flest svo borið aptur, en mörgu trúað samt sem
áður. Krítarbúar hinir grisku viija komast í lög við Grikki,
og svo er viðar um fleiri af þvi þjóðerni, og sama um önnur
að segja, sem kallast lausnar bíða, að hver vill til sinna þjóð-
bræðra hverfa. því er nú fleygt um Albana — en þeir eru
nokkuð margkynjaðir að þjóðerni til — að þeir mundu helzt
kjósa að komast undir væng Austurríkis, eins og Bosniumenn
og Herzegóvinubúar.