Jörð - 01.09.1947, Blaðsíða 52
50
JÖRÐ
Frú Hildur Bjarnadóttir lézt í Stykkishólmi sumarið 1915.
Synir hennar létu jarða hana á ættar- og æskuslóðum hennar á
Staðarfelli, við hlið móður hennar. Eftir meir en hálfrar aldar
fjarvist kom lún háaldraða brúður aftur alkomin heim á
bernskustöðvar sínar, í hina staðföstu hvílu og í hina þöglu ró.
FYRIR nokkrum áruin kom eg að Staðarfelli. Jafnskjótt og
eg steig út ú'r vagninum og áður en eg heilsaði húsráðanda,
skundaði eg að leiði hinnar gömlu grannkonu minnar. Þá er
eg sneri aftur til samferðamanna minna, liöfðu þeir orð á, að
mér hefði legið á út í kirkjugarð og mér hefði lengi dvalizt þar.
Sigurður Guðmundsson.
Viðbætir:
Frá Brynjólfi í Þverárdal
Eftir Elisabetu Guðmundsdóttur, Gili i Svartárdal.i)
ONA Brynjólfs var Steinunn Guðmundsdóttir frá Mörk
JLv á Laxárdal. Bjuggu þau fyrst á Refsstöðum og síðan í
Þverárdal. Barna varð þeim ekki auðið, enda varð sambúð
þeirra ekki löng, aðeins 10 ár. Eftir það bjó Brynjolfur með
ráðskonu, Ingibjörgu Ólafsdóttur, um 20 ár. En í Þverárdal
bjó Brynjólfur alls 27 ár. Hann unni Þverárdal mjög og hugs-
aði um að gera garðinn frægan. Hann sléttaði túnið, bvggði
upp bæinn betur en títt var í þá daga, og var stofan í Þverárdal
prýdd flestum þá-tízkuhúsgögnum, svo að maður sá ekki slíka
stofu til sveita. Þótti mörgum gaman að koma að Þverárdal og
sjá alla híbýlaprýði þá, sem þar var, og þá ekki síður að njóta
gestrisni húsbændanna, heyra Brynjólf spila á orgelið og syngja.
Rækti hann öll störf með hinni mestu trúmennsku og vand-
virkni, svo að allt var í röð og reglu. Hann unni þessari sveit
1) Elísabet systir mín flutti í Bólstaðarhllð erindi um Brynjólf ( Þverárdal,
þá er 75 ár voru liðin frá fæðingu hans. Er þessi lýsing á honum tekin úr því.
Felldi cg sumt úr því, sem getið er í grcin minni um móður hans. — Sig. G.