Jörð - 01.09.1947, Blaðsíða 125
JÖRÐ
123
ii' eins svo hvæðilega heitt í gufukatlinum, að Jeremías varð að
fá sér öl til að svala sér á.
Fimm dagar liðu, án þess að reynt væri að ná Jeremíasi út.
Honum var fært bæði vott og þurrt, en hann smakkaði ekki
nokkurn matarbita, og loks var hann orðinn svo veiklaður, að
hann þoldi ekki, að komið væri við ketilinn. Ef einhver sló á
járnið með hnúanum, þá bara hrein Jeremías — eins og hann
hefði verið stunginn, svo að nú var of seint að grípa til þess að
meitla ketilinn í sundur, — það mundi vesalingurinn innilukti
aldrei þola. Ekki vantaði það, að menn kæmu og þinguðu á
bryggjunni um þetta og hitt, sem hugsanlegt væri, en enginn
stakk samt upp á þvf að leita hjálpar eða ráða út á Skaga. Elías
framkvæmdastjóri lét sjá sig einum tvisvar sinnum — var að
vanda með röndótta trefilinn sinn í kappmellu um hálsinn, og
endarnir dingluðu utan á jakkanum — og hann sagði svo sem
ekki mikið, sízt hann kynni nokkur ráð. Hann ráfaði háleitur
um bryggjuna og gaf katlinum, póstskipinu og fólkinu auga —
°g veifaði handleggjunum eins og hann var vanur, og svo sagði
hann bara:
— Hann hlýtur að komast út, maðurinn, fyrr eða síðar, það
þarf enginn annað mér að segja — hefur víst ekki heyrzt fram
að þessu, að maður hafi drepist inn í dampkatli — vil ekki heyra
þetta! Og svo var hann farinn, og trefilendamir dingluðu og
dingluðu við hvert fótmál.
Presturinn hafði komið — en hann hafði ekki getað neitt.
IJað var ekki séra Jósteinn; hann var fluttur í annað brauð — og
þessi var alvarlegur mjög og hvítur og gljáandi í framan og allt-
af 'feikilega fínt búinn, og hann ávarpaði Jeremías hátíðlega
nrn um opið — næstum að segja í embættisnafni, og bað hann
að sýna þolinmæði; með guðs hjálp yrðu einhver ráð, en hann
kunni engin ráð.
SVO var það þá á fimmta degi, að Elías framkvæmdastjóri
sendi eftir Þrúðu grasakonu og sagði við hana:
— Ég ætla að biðja þig að ganga ofan eftir •- og þú færð eitt-
hvað hérna hjá mér, þegar þú ert búin að ná honum Jerra grey-
inu út, — má ekki eiga sér stað, að hann leggist þarna fyrir að