Jörð - 01.09.1947, Blaðsíða 193
B. O. B«:
Faðir-vor
VIII.
ERÐI vilji þinn svo á Jörðu sem á himni!“
" „Verði Guðs vilji!“ Oft hefir setning þessi verið sögð
— og oft af einlægri undirgefni undir vilja Guðs, — eins og
liann var skilinn af segjanda — og er skilinn af flestum. Sjúk-
dómur og dauði, óhöpp og ólán er nú samt alveg gagnstætt
liinum eiginlega vilja Guðs, sem er að guðsbarnið í þér og
mér vakni til vitundar um sjálft sig og taki að neyta barnsrétt-
indanna, erfingjaréttarins. „Sjálfur Andinn vitnar með vorum
anda,“ segir Páll postuli, „að vér erurn börn Guðs. En ef vér
erum börn, þá erum vér líka erfingjar" — „eilífs lífs og allra
hluta.“
Það er vilji Guðs, oss mönnum til handa, að vér lærum fyrst
og ifremst að þekkja HANN sem FÖÐUR — og þá um leið
sjálf oss sem börn hans; í öðru lagi, og þar af leiðandi, náunga
vora sem bræður vora og systur; í þriðja lagi, einnig þar af leið-
andi, sjálf oss og náunga vora sem erfingja — ekki „að eins“
eilífs lífs, heldur og „allra hluta“. Það er vilji Föðurins, að
börn hans læri að leiða í ljós alla þá — svo til ógrunuðu — dá-
sernd, sem hann hefur fólgið í gervöllu Sköpunarverkinu og
þá umfram allt manneðlinu og eðli samstillts samfélags. Það
er vilji Guðs, að RÍKI HANS komi svo á Jörðu sem á himni.
Það er vilji hans, að fleiri og fleiri læri að lifa undir „hinum
nýja sáttmála", sem leysir af hólmi „hinn gamla sáttmála boð-
orðalögmálsins" í fari lærisveins Jesú Krists, er hann hefur
lært að líta á sig sem barn Guðs, bróður náunga síns og erf-
ingja allra hluta.
Þegar komið er inn á svið „liins nýja sáttmála" („liins nýja
testamentis"), er að eins um eitt boðorð að ræða: kærleikann.
Þar ríkir „hið fullkomna lögmál frelsisins", — svo að notað sé
hið undursamlegá orðalag Jakobsbréfs. Frelsið mikla, sem
mennirnir hafa alla tíð þráð og útlrellt blóði sínu fyrir, og
fálmað eftir með allskyns óburðugum tilburðum, og sungið
sfna innfjálgustu og heitustu söngva til, — frelsið, sem þeir hafa