Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1930, Side 35

Eimreiðin - 01.10.1930, Side 35
eimreiðin SAGA ÚR SÍLDINNI 339 skuldirnar og hungrið, hefur öðrum guðum að gegna en mentagyðjunni og horfist í augu við alvarlegri rögn en svo, að hann hafi geð til að sitja undir hrókaræðum um skrautið, sem veggina prýðir í hásal lífsins. Trúmálahreyfingarnar liggjá honum í léttu rúmi úr því að síldin hefur ekki látið sjá sig síðan sumarið, sem hann ]ónsi litli fæddist, og honum er einnig býsna laust í hendi um pólitíkina og heilsufræðina, meðan brugðist getur til beggja vona, hvort hann fái eina lúku mjöls framar að láni hjá kaupmanninum. Nei, þeir hirða ekki einu sinni um að ala upp börnin sín, þeim stendur eins hjartanlega á sama um börnin sín eins og yfirleitt er hægt að láta sér á sama standa um börn. Þeir bæta bara einu við á ári hverju. En það er ekki vegna þess, að þeim þyki svona gaman að börnum, eða svona vænt um börn, eins og maður skyldi halda, heldur af alt öðrum ástæðum. Og krakkarnir alast upp í fjörunni og í garðinum, eða á vegamótunum og við lækinn og læra að bölva áður en þau læra að tala og að stela áður en þau læra að fela. Og sýslu- skrifarinn og fríkirkjupresturinn fá gráthljóð í kverkarnar á sér út af þessari spillingu. En þessir góðu menn hafa ekki tekið eftir því, að bölvið fer að eldast af krökkunum úr því að þau eru tíu ára, og fæst þeirra bölva að meðaltali öllu rneir en fullorðið fólk úr því þau eru komin um fermingu. 2. En í sumar koma nótabátarnir sem forðum utan af firðin- vm sökkhlaðnir á hverri stund dags og hverri stund nætur. I sumar hverfur enn sem forðum munur dags og nætur í bessu fjarðarþorpi milli fjallanna. Alla nóttina blandast véla- hvissið utan af firðinum við háreysti andvaka manna, sem eru að græða fé. Niðri á bryggjunum morar af kvenfólki á öllum hugsan- ^gum aldri og í öllum hugsanlegum sniðum. Þær eru klæddar 1 úlpur og burur af ótrúlegustu gerðum, þar sem hver flík er til orðin í stíl hinnar ólistrænu fegurðar, sem nauðsyn hversdagsleikans ein er fær um að skapa. Sama máli gegnir um alla þá dýrlegu fjölbreytni, sem hér er til sýnis af höttum, húfum og hattkúfum. Það er ekki sú kvenkind, að hún skríði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.