Uppeldi og menntun - 01.01.2001, Blaðsíða 65
GERÐUR G. Ó5KARSDÓTTIR o.fl.
un og kröfum um færni í 100 almennum störfum sem nefnd hefur verið Færnikröf-
ur starfa (Gerður G. Óskarsdóttir og Hildur B. Svavarsdóttir, 2000).
Hér verður lýst samanburðarrannsókn í fjórum löndum á þróun og kröfum um
færni í störfum sem ekki krefjast sérmenntunar úr skóla. Könnuð voru 20 störf í
hverju af löndunum fjórum: Islandi, Frakklandi, Grikklandi og Italíu.2 Störfin voru á
sviði framleiðslu, þjónustu og viðskipta.3 Á íslandi lágu fyrir rannsóknarniðurstöð-
ur um 80 störf til viðbótar úr rannsókninni Færnikröfur starfa og byggði samanburð-
arrannsóknin sem hér er lýst á aðferðum þeirrar rannsóknar.4
Með rannsókninni sem hér er til umfjöllunar var leitast við að svara þeim spurn-
ingum hvort þessi 20 störf í löndunum fjórum væru almennt að verða einfaldari eða
flóknari, hvort reyndi á almenna starfsfærniþætti í öllum störfunum og loks hvaða
munur væri annars vegar á þessum störfum og hins vegar á löndunum fjórum í
þessum efnum. Markmið rannsóknarinnar var bæði fræðilegt og hagnýtt. Fræðilegt
markmið hennar var í fyrsta lagi að skoða og bera saman milli landanna fjögurra
þróun ákveðinna starfa. Það var gert með því að fá upplýsingar frá starfsmönnum
og yfirmönnum þeirra um þróun síðustu ár og hugmyndir þeirra urn þróun f nán-
ustu framtíð. í öðru lagi var ætlunin að kanna hvort og hve mikið reyndi á almenna
starfsfærniþætti í þeim störfum sem skoðuð voru og bera niðurstöður saman á milli
landanna fjögurra. í þriðja lagi var stefnt að því að greina einstök störf með hliðsjón
af þróun þeirra og kröfum um færni og bera þau saman við önnur störf.5
Hagnýtt markmið var að skapa þekkingu sem nýst gæti við ákvarðanatöku um
stofnun og skipulagningu starfsmenntabrauta. Kæmi í ljós að einhver störf væru að
verða flóknari og í þeim reyndi á margs konar færni í ríkari mæli en öðrum störfum
gætu niðurstöður bent til að skoða ætti umrædd störf þegar ákvarðanir eru teknar
um nýjar starfsmenntabrautir. Niðurstöður greiningar á einstökum störfum í saman-
burði við önnur störf gætu einnig nýst sem grunnur að skipulagi á heildstæðri og
starfsmiðaðri símenntun í viðkomandi störfum eða starfaflokkum.6
Niðurstöður voru túlkaðar í Ijósi kenninga um að störf séu almennt að verða
flóknari og kröfur um færni þar með að aukast. Því voru settar fram eftirfarandi til-
gátur:
1. Störf eru almennt að verða flóknari, þ.e. yfir helmingur viðmælenda
vegna hvers starfs telur að kröfur til starfsmanna séu að aukast.
2. Oll störf krefjast í einhverjum mæli eftirfarandi færniþátta:
* Grundvallarfærni í lestri, ritun, reikningi og erlendu tungumáli.
* Færni í samskiptum og samvinnu.
* Hugmyndaauðgi, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
16 Færni í meðferð gagna og upplýsinga.
2 Samstarfsaðilar náðu saman fyrir atbeina Leonardó da Vinci áætlunarinnar.
3 Ytarlega lýsingu á niðurstöðum þessarar rannsóknar er að finna í: Oskarsdottir, Busetta,
Ginesté, Papoutsakis (2000).
4 Sjá nánari upplýsingar um niðurstöður þeirrar rannsóknar t.d. í: Gerður G. Óskarsdóttir
og Hildur B. Svavarsdóttir (2000).
5 I öllum löndunum fjórum var starf starfsmanns í gestamóttöku greint og borið saman
við hin störfin og á íslandi hafa auk þess verið gefnar út skýrslur með greiningum á 14
störfum, flestar unnar fyrir stéttarfélög, fyrirtæki og starfsgreinaráð.
6 Nám fyrir starfandi stuðningsfulltrúa og skólaliða sem nú fer fram í Borgarholtsskóla í
Reykjavík byggir á greiningu niðurstaðna úr Færnikröfum starfa.