Blik - 01.06.1972, Page 85
Kvæðið
Páll Bjarnason, skólastjóri
Einn af nemendum Páls skóla-
stjóra Bjarnasonar frá Stokkseyrar-
árunum var Einar M. Jónsson, kenn-
ari og stúdent, sem síöast á æviferli
sínum var skólastjóri iðnskólans á
Reykjalundi. Hann var skáld og gaf
út þrjár ljóðabækur. Ein ljóðabókin
hans, Brimar á skerjum, kom út árið
1946. Eitt kvæðið þar heitir Páll
Bjarnason skólastjóri. Þar drepur
skáldið á starf skólastjóra, er hann
gengur með nemendur sína um
Stokkseyrarfjörur og kynnir þeim
gróðurinn og dýralífið í sjónum þar
við ströndina ,en hann var vel að
sér í öllum greinum náttúrufræðinn-
ar og unnandi þeirra fræða.
Þá minnist skáldið þess, er skóla-
stjóri gengur með nemendur sína á
Grænuborg, sem er hæð upp af (norð-
ur af) Stokkseyrarþorpinu. Þaðan
gefur að líta víðáttumikinn og fagran
fjallahring í björtu veðri. Þessar
ferðir skáldsins urðu því ógleyman-
legar. Allra fyrst minnist skáldið litla
skólahússins á Stokkseyri, sem byggt
var um eða rétt eftir aldamótin og
var kallað Götuhúsaskóli. Ég minn-
ist þessa skólahúss frá ferðum mín-
um með nemendur mína á styrjaldar-
Páll Bjarnason, skólastjóri.
árunum. Þá ferðuðumst við til Stokks-
eyrar á vélbátnum Gísla J. Johnsen
undir stjórn Sigurjóns Ingvarssonar,
hins reynda sjómanns og skipstjóra,
og gistum þá í þessu skólahúsi, þegar
við urðum knöpp fyrir og þurftum
að bíða byrjar heim. Þ. Þ. V.)
Um lítið hús geymi ég ljúfar minjar;
blikflöt bernskuára.
Léttum sporum ég leiðum beindi
þangað fræðslu að fá.
BLIK
83