Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 28
28
NORÐURLJÓSIÐ
og giftust. Ég gaf þeim öllum búgarð í brúðkaupsgjöf. Guð
hefir verið okkur svo góður. Ég mundi hafa glatað búgarðinum
og sennilega sálu minni, hefði ekki verið maður, sem heyrði, að
við værum í vandræðum, kom hingað og blátt áfram hjálpaði
okkur.
„Bill, þessi hávaxni, ókunni maður var faðir þinn!“
Það borgar sig að þjóna Jesú.
Faðir minn! Guð blessi hann! Fyrir um fjörutíu árum, löngu
áður en ég fæddist, hafði hann heyrt um mann, sem var í erfið-
leikum, og af því að faðir minn elskaði Drottin, hjálpaði hann
manni, sem var í nauðum. Hann hjálpaði til að bjarga búgarði
hans og leiddi hann síðan til Jesú ICrists.
En föður mínum kom ekki til hugar, að yngsti sonur hans
mundi um fjörutíu árum síðar koma ríðandi sama veginn á
hvítu hrossi og lánshnakk, — beiskur, fráfallinn, félaus, hungr-
aður og hálfdauður úr hræðslu. Honum datt ekki í hug, að
maður, sem hann hafði hjálpað, mundi hjálpa mér, biðja með
mér, bjóða mér peninga, mæla við mig vingjarnleg orð, upp-
örva mig. Þetta allt kom ekki föður mínum til hugar.
Ég steig á bak Farðu vestur og hélt af stað á móti upprenn-
andi sól. Ég sagði við sjálfan mig: „Það borgar sig eftir allt
saman að vera sunnudagaskóladrengur. Það borgar sig að lifa
fyrir Krist, gerir það alveg áreiðanlega. Ég ætla að lifa fyrir Guð,
og ég ætla að verða predikari!11 Það, sem meira var, ég var
fullviss um, að hinn kæri Drottinn mundi annast um mig á
komandi dögum, eins og hann hafði annast um mig nóttina á
undan.
Nóttin, sem ég gisti á búgarðinum í Texas, hafði geysidjúp-
stæð áhrif á mig á þeim dögum, sem fóru í hönd, og alla tíð
síðan.
Góði granni minn, hví segir þú ekki: „Drottinn, ég ætla að
þjóna þér. Ég ætla að fylgja þér. Ég vil vera þinn. Ég treysti
þér til að frelsa mig og fyrirgefa mér syndir mínar. Ég ætla að
fara þangað, sem þú vilt láta mig fara, og vera það, sem þú vilt
láta mig vera.“
Við getum sagt, eins og höfundur bréfsins til Hebrea: „ . . .
„Sá, sem gengur fram fyrir Guð, verður að trúa því, að hann sé
til og að hann lætur þeim launað, sem leita hans.“ (Hebrea-
bréfið 11.6.) — Endir.