Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 133
NORÐURLJÓSIÐ
133
trúir því af einlægni, að hún sé flöt. Hvort myndir af jörðinni,
teknar utan úr geimnum, er sýna mjög vel hnattlögun hennar,
hafa getað breytt sannfæring hans, það læt ég ósagt um. En
hitt veit ég, að drykkjumaður, þjófur og auðnuleysingi sneri sér
til Krists, tók á móti honum og fékk kraft frá honum til að byrja
nýtt líf. Hann á fjölda sinna líka erlendis, t. d. í Bandaríkjunum.
Hvorki svipuhögg, fjötrar né fangelsi gátu breytt eðli þeirra.
En þegar þeir sáu, að Jesús Kristur gæti hjálpað þeim eða var
sagt, að þeir skyldu reyna að ákalla hann af hjarta, þá gerðist
máttarverkið mikla, sem bjargaði þeim. Sumir í fremstu röð
predikara og mannvina voru eitt sinn ræflar, sem lágu auga-
fullir í vatnsræsinu við götukantinn. Aðrir voru bugaðir eitur-
lyfjaneytendur. Ég á nokkrar af bókum Davíðs Wilkersons, sem
er orðinn víðkunnur maður vegna þess björgunarstarfs, sem
hann hefir rekið í New York. En kraftur Krists fyrir heilagan
Anda hefir náð tökum á þessum mönnum, er þeir í neyð sinni
leituðu Jesú. Þeir hafa losnað úr fjötrunum, orðið nýir menn
og konur, sem lifa guðræknu, grandvöru lífi. Hvernig gæti þetta
átt sér stað, ef biblían væri ekld sönn? Ef Guð væri ekki til?
Ef Kristur væri ekki sonur Guðs, sem kom í heiminn til að frelsa
synduga menn?
Lögfræðingurinn.
Þegar hér er komið, vil ég rifja upp sögu eina sanna, sem eitt
sinn kom í Nlj., ef ég man rétt. I borg nokkurri vestan hafs var
lögfræðingur, gáfaður, en vantrúarmaður. Þar var einnig ung-
lingspiltur vitgrannur og nefndur Jói bjáni. Þarna voru eitt sinn
haldnar vakningarsamkomur. Þar var prédikuð synd og náð og
fólk hvatt til að koma fram og taka á móti Kristi, láta frelsast.
Jói var á samkomu og gerði þetta.
Lögfræðingurinn frétti það, og er hann hitti Jóa, sagði hann
piltinum, að þetta hefði verið óþarfi. Guð væri ekki til né glötun.
Jói sagði þá, að hann hefði litið þannig á málið, að hann hefði
ekki viljað eiga neitt á hættu. Væri engin glötun til, þá gerði
það ekkert til, þótt hann sneri sér til Krists. En væri hún til,
en hann ekki tekið á móti Kristi, þá færi illa fyrir honum.
Lögfræðingurinn, sem vanur var að hugsa rökrétt, gat ekki
mótmælt þessari röksemd Jóa bjána. Hún opnaði augu hans og
nagaði síðan huga hans, uns hann vildi ekkert eiga á hættu
fremur en Jói, svo að hann beygði sig, sneri sér til Krists og tók
á móti honum sem frelsara sínum.