Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 59
NORÐURLJÓSIÐ
59
hann og þjónað honum á þessum útlegðartíma hans, síðan
Gyðingar höfnuðu honum. Hann mun setjast að völdum í
Jerúsalem. Þá rætist það, sem Salómó ritaði í 72. sálminum um
hann:
,,Um hans daga skal réttlætið blómgast,
og gnóttir friðar, uns tunglið er eigi framar til.
Og hann skal ríkja frá hafi til hafs,
frá Fljótinu til endimarka jarðar . . .
Og allir konungar skulu lúta honum,
allar þjóðir þjóna honum.
Því að hann bjargar aumingjanum, er hrópar á hjálp,
og hinum voluðu og þeim, er enginn liðsinnir.
Hann aumkast yfir bágstadda og auma,
og sálum aumingjann^i hjálpar hann.
Frá ofbeldi og ofríki leysir hann sálir þeirra,
og blóð þeirra er dýrmætt í augum hans . ..
Gnóttir korns munu vera í landinu á fjallatindunum,
í gróðri þess mun þjóta eins og í Líbanon,
og menn skulu spretta upp í borgunum, eins og gras úr
jörðu.
Nafn hans mun vara að eilífu,
meðan sólin skín mun nafn hans gróa.
Og með honum skulu allar ættkvíslir jarðarinnar óska sér
blessunar,
allar þjóðir munu hann sælan segja.“
Forsmekk þessarar blessunar er unnt að öðlast nú. Hvernig
þá? Með því að bjóða Drottni Jesú inngöngu í hjarta sitt, hafi
það ekki verið gert áður, og gera það að eina markmiði lífsins að
þóknast honum sem Drottni sínum og konungi, þar sem enginn
maður, stofnun, kirkja né ríki komi á milli og sé leyft að skipa
æðsta sessinn í hjartanu. Þetta kostar stundum mikið, mælt á
mannlegan kvarða. En það kostar aldrei of mikið, sé það mælt á
kvarða hjartans, sem krýnt hefir Jesúm konung sinn hér í lífi
og að eilífu. — Sæmundur G. Jóhannesson.