Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 146
146
NORÐURLJÓSIÐ
ir sofnaðra, helgra manna upp. Þeir voru samt kyrrir í gröfunum,
uns Drottinn Jesús var risinn upp frá dauðum. (Matt. 27.52.,
53.). Þá fóru þeir út úr gröfunum og inn í hina helgu borg
(Jerúsalem) og birtust þar mörgum. En þegar Drottinn Jesús
steig upp til himins, tók hann alla hina réttlátu með sér, sem
þangað til voru geymdir í dánarheimum. Efes. 4.3. Síðan eru
þeir á himni. Hebr. 12.23. Þá rættist fyrirheit hans: „Hvar sem
ég er, þar skal og þjónn minn vera.“ (Jóh. 12.26.).
4. Fjötraðir menn.
Drottinn kom einnig til að boða „fjötruðum lausn“. Hann
sagði um eina konu, sem hafði sjúkleika anda, var kreppt og
gat ekki rétt úr sér, að Satan hefði haldið henni í f jötrum í 18 ár.
En Drottinn Jesús leysti þessa konu. Þannig leysir hann hina
bundnu. Enginn þekkir tölu þeirra, sem eiturlyf, fíknilyf, áfengi,
tóbak, lestir, syndir og vondar venjur hafa lágt í fjötra, en
Drottinn Jesús leyst af mildi sinni og mætti. Ekki má heldur
gleyma hleypidómum, hjátrú og vantrú. Sál frá Tarsus verður
ætíð sígilt dæmi vantrúarmanns, sem Drottinn frelsaði, leysti
frá vantrú hans.
Náðarárið.
Hann kom til að boða „náðarár Drottins“. Guði sé lof, a
þetta náðarár stendur enn. Þrátt fyrir alla mótspyrnu Satans og
illra anda og vondra, hugspilltra manna, blinduðum vantrú,
hleypidómum og ofstæki gagnvart Kristi, þjónum hans, boðskap
hans og börnum Guðs, þá stendur þetta náðarár enn. Fólk getur
frelsast enn án allrar verðskuldunar. Svo djúpt er enginn sokk
inn, að náð Guðs og almættiskraftur fái eklci bjargað og dregiL
mann upp úr feninu, veitt honum fótfestu á kletti og gert hann
styrkan í gangi. (Sálm. 40.2., 3.).
En náðarárið tekur enda. Hefndardagur Guðs rennur upp.
Hann verður að hegna jarðriki fyrir illsku þess. Sbr. Jesaja 24.
Þetta getur huggað hina hrelldu, sem ofríki og kúgun eru beittir.
Nú læt ég staðar numið, þótt ýmislegt sé hér eftir ósagt enn,
er segja má í framhaldi textans. Hver veit, nema ég fái tækifæri
til að senda þér annan pistil seinna.
ANDALÆKNINGAR.
Kæri ...
Þá eru það andalækningar. Biblían talar um þjónustu-anda.
Spákonan í Endór hafði slíkan anda. Getur þú lesið frásöguna