Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 86
86
NORÐURLJÖSIÐ
sem afsanna hana! Engin furða, að dr. Francis Crick, sem hlotið
hefir ásamt öðrum manni nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir í
eðlisfræði, riti á þessa leið:
„Kenningin (um þróun) virðist líkleg, en sem kenning er á
henni einn stór galli: hún er of rúmgóð. Á lauslegan hátt getur
hún skýrt allt. Sá er annar galli hennar, að fyrstu sporin, sem
þarf til að koma kerfinu af stað, virðast krefjast heldur mikilla
tilviljunarafleiðinga. ICenning af þessu tagi er ekki nauðsynlega
gagnslaus, ef hægt er að komast að staðreyndum með tilraunum.
Því miður, í þessu vandamáli þá er það einmitt þetta, sem er
svo erfitt að gera.“
Biblían kennir, að á síðustu tímum munu koma fram menn,
„sem eru alltaf að læra, en geta aldrei komist til þekkingar á
sannleikanum.“ (2 Tím. 3.7.). (Þýtt úr „The Flame“ júlí-ágúst
1975. S. G. J.).
Boðskapur krossins
1. Krossinn og Guð.
Kross Krists er opinberun. Krossinn er æðsta opinberun elsku
Guðs til syndugra manna. Hann birti hana, túlkaði hana, sýndi
hana í verki. Krossinn sýnir ekki einungis kærleika Guðs, heldur
líka afstöðu Guðs til syndarinnar. Það er þetta ,óhjákvæmilega‘
í þjáningum Krists, sem er eins nauðsynlegt, til þess að syndar-
inn geti treyst því, eins og það er fyrir heilagleika Guðs. Fyrir
krossinn kemur náð og kraftur, fyrirgefning og hreinsun, sam-
félag og gleði.
2. Krossinn og hjálpræðið.
Krossinn er það, sem Guð leggur fram mönnum til hjálpræðis.
Krossinn er grundvöllur fyrirgefningar, trygging lausnar úr þræl-
dómi og vegurinn til arfleifðarinnar. Fagnaðarerindi krossins er
staðfest af reynslu sérhvers trúaðs manns. Vegna krossins erum
við réttlætt, ekki vegna þess, að syndin sé hulin eins og með
yfirhöfn, heldur vegna þess að hún er tekin á brott. Þetta er
meira en sáttargjörð, því að blettur af synd er samofinn sjálfri
sálinni. Það verður að vera hreinsun og endurnýjun, hreinsun
og endurfæðing. Boðskapur krossins er samandreginn í orðun-
um: „Blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd.“