Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 115
NORÐURLJÓSIÐ 115
synlega gott í augum óþroskaðs barns hans. Það geta verið von-
brigði, sársauki, harmur, barátta, barmafullur bikar af beiskum
drykk, sem við viljum ekki drekka, sakir skorts á undirgefni,
bikar, sem við erum knúin til að drekka í botn, ef undirgefni
og fúsleiki til að þjást eru ekki fyrir hendi. Öll börn Guðs eru
nemendur í skóla Guðs. Hann kennir margar námsgreinar. Ein
hin helsta er heilagleiki, sem á að birtast í allri hegðun barna
Guðs.
7. Drottinn Jesús biður fyrir honum. Við lesum í Róm. 8. 33.,
34.: Hver skyldi ásaka Guðs útvalda? Guð er sá, sem réttlætir."
(Þá ásakar hann ekki mann, sem hann hefir réttlætt). Hver er,
sem fordæmir? Kristur Jesús er sá, sem dáinn er og meir en það,
er upprisinn frá dauðum, hann, sem er við hægri hönd Guðs,
hann, sem einnig biður fyrir oss.“
Þar sem Guð hefir réttlætt sína útvöldu vegna trúar þeirrar á
Drottin Jesúm Krist (Róm. 5.1.), þá fer Guð ekki að ásaka þá,
útskúfa þeim. Drottinn Jesús biður fyrir þeim, og Faðirinn bæn-
heyrir hann ávallt, eins og Drottinn sagði við gröf Lasarusar.
(Jóh. 11.41.).
,,Símon, Símon, sjá Satan krafðist yðar til að sælda yður eins
og hveiti; en ég hefi beðið fyrir þér, til þess að trú þín þrjóti
ekki.“ (Lúk. 22. 31., 32.). Allir þekkja hryggilega hrösun Péturs,
hvernig hann með eiði og formælingum afneitaði Drottni sínum
og vini. En trú hans þraut ekki. Hann grét beisklega, en fyrir-
fór sér ekki eins og Júdas. Þannig naut hann fyrirbænar Drottins
Jesú.
Ef Guðs barn gæti glatast, þá yrði Guð fyrst að hætta að
yara bænum Drottins Jesú. En dýrð sé Guði, hann hættir aldrei
ð svara bænum Drottins Jesú Krists.
Heilagur Andi biður einnig fyrir þeim, sem trúa á Drottin
Jesúm Krist. ,,En sömuleiðis hjálpar og Andinn veikleika vorum,
því að vér vitum ekki, hvers vér eigum að biðja eins og ber;
en sjálfur Andinn biður fyrir oss með andvörpunum, sem ekki
verður orðum að komið . . . Hann biður fyrir heilögum eftir
Guðs vilja.“ (Róm. 8. 36., 37.).
Guð vill láta biðja fyrir sínum heilögum, börnum sínum. Þau
eru heilög samkvæmt köllun, þrátt fyrir þann breyskleik, sem
loða vill við oss, meðan vér lifum í heimi syndar og ófullkom-
leika.
8. Þegar maðurinn endurfæðist eignast hann verjanda mála
sinna frammi fyrir Guði.