Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 94
94
NORÐURLJÓSIÐ
sannleika og raunveruleika kommúnismans. Ég tilbað Stalin,
sem sagði: „Hver, sem ekki er með okkur, er á móti okkur.“
Hann breyttist seinna, er sögur af grimmdarverkum stalinism-
ans fóru að berast honum. Þegar honum var sagt, að
12 milljónir manna hefðu verið afmáðar,
„kom yfir mig djúp tilfinning dofa og viðbjóðs," sagði hann.
Dotsenko kennir nú stærðfræði við lúterska háskólann í
Waterloo í Canada. Biblíuna kallar hann hina mestu trúarbók,
þar sem verk Guðs eru skráð fyrir þá, sem trúa. Réttlætingar
þarfnast trúin ekki. Hún er gefin þeim, sem hún er gefin.
Hann gerði margar vísindalegar athuganir, meðan hann var í
Sovétríkjunum. Mikið af kristilegri trú hans er grundvallað á
þeim. Vísindalegt lögmál eitt — lögmál þeirrar orku, sem ekki
verður breytt í hita, sannfærði hann um, að yfirnáttúrleg vera
héldi jarðhnettinum saman með valdi sínu yfir náttúrulögmáli.
Þetta flókna orkulögmál merkir í raun og veru, að án þessa
aðhalds mundi tilverukerfið fljótlega leysast upp.
Dotsenko sagði, að heitasta ósk hans mannkyninu til handa
sé sú, að „það læri sannleika og vegu réttláts og skynsamlegs
lífs sem börn hins hæsta Guðs, sem leið og dó fyrir syndir okkar
í persónu Jesú Krists.“ (Þýtt úr „The Flame“, nr. 3, 1973).
Athugasemd ritstjóra: Þessi leyndardómsfulla orka, sem held-
ur efninu saman, er kraftur Drottins Jesú Krists. Hann „ber allt
með orði máttar síns.“ (Hebr. 12.3.). Um leið og Kristur gefur
þessari orku lausn, „munu himnarnir með miklum gný líða
undir lok, frumefnin sundurleysast í brennandi hita, og jörðin
og þau verk, sem á henni eru, upp brenna.“ (2 Pét. 10.).
Hvernig vissi ólærður fiskimaður frá Galíleuvatni þessi nútíma
vísindi, ef ekki er til guðleg opinberun? Þetta hefir staðið í
bréfi Péturs, síðan í fornöld. Það er engin viðbót frá lærðum
mönnum nútímans. Drottinn þekkir handaverk sín — og þar
með þig og mig. — S. G. J.
„Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig. Hvort, sem ég sit eða
stend, þá veist þú það, þú skynjar vegu mína álengdar-
Hvort, sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það, og alla vegu
mína gjörþekkir þú, því að eigi er það orð á tungu minni, að þú,
Drottinn, þekkir það eigi til fulls.“ — Sálm 139. 1. —4.