Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 127
NORÐURLJÓSIÐ
127
konu, var skorin burtu. 1 Mós. 17.10. —14. Umskurn var (a) tákn
þess sáttmála, sem Guð gerði við Abraham og niðja hans. (b)
Tákn þess, að Abraham væri fyrir Guði réttlættur af trú. Róm.
4.9. — 12. (c) Umskurnin greindi Israelsmenn frá öðrumþjóðum
og gerði þá að Guðs þjóð. Trúin á Jesúm Krist greinir þá, er eiga
slíka trú, frá hinum, sem eiga hana ekki.
Undir himninum. Sá hluti heimsins, er menn þekktu á þeim
dögum. Sbr- Post. 2. 5. —11.
Útvalning. „Margir eru kallaðir, en fáir útvaldir.“ Matt. 22.14.
Þótt Guð útvelji menn, er enginn útilokaður frá hjálpræði hans,
því að „hver, sem vill, hann talci ókeypis lífsvatnið.“ Opinb. 22.
17.
Valdhafinn í loftinu, Efes. 2.2., er Satan, djöfullinn, sem kom
af stað uppreisn gegn Guði og þar með syndinni. 1 Mós. 3.
Honum fylgja voldugir englar, tignir og völd. Efes. 3.10., 6.12.
sem standa gegn þjónum Guðs. Sbr. Dan. 10.2. —13. Illir andar
eru líka í þjónustu hans. Lúk. 13.11., 16. Vopn hans eru, eins
og Lúter kvað: Grimmd og slægð. Opinb. 2.10., 2 Kor. 11.2, —4.,
13.-15.
Valdsmenn, valdsstétt, Róm. 13.1. —7., eru eða eiga að vera
verðir laga og réttar. Á tímabilinu frá syndafallinu til Nóaflóðs
virðast engar valdstéttir hafa verið til. Jörðin fylltist af glæpa-
verkum. 1 Mós. 6. Eftir flóðið „kom konungdómur niður frá
himni,“ segir á fornri leirtöflu. Sbr. lögin um dauðarefsingu, sem
Guð setti eftir flóðið. 1 Mós. 9.5., 6.
Villidýr í Efesus. 1 Kor. 15.32. Sbr. 1 Kor. 16.9. og Post. 19.
23, —41. Vera má Iíka, að Páll hafi verið handtekinn og orðið
að berjast við villidýr á leikvangi borgarinnar, þótt ekki sé sagt
frá því.
Yfirstandandi neyð. 1 Kor. 7.26., getur hafa verið hungurs-
neyðin, — eða afleiðingar hennar — á dögum Kládíusar keisara
í Róm. Sbr. Post. 11.28., 29. og 1 Kor. 16.1, —4.
Yfirtroðsla, yfirtroðslumaður. Róm. 2. 23., 25. Það að brjóta,
troða undir fótum lög Guðs og reglur, óhlýðni af settu ráði.
öld, Róm. 12.2, merkir breytni, líferni, hegðun fólks, sem
lifir án ICrists og skiptir sér ekkert af Guði.
Lesendur. Prófarkalestri varð að hraða svo mikið, að ekki
vannst tími til að sjá, hvort prentvillur væru í tilvitnunum.