Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 145
NORÐURLJÖSIÐ
145
verið brotnir niður. Hún segir líka: „Eins og borg, sem múrarnir
hafa verið brotnir utan af, eins er sá maður, sem eigi hefir stjórn
á skapsmunum sínum.“ (Orðskv. 25.28..). Þetta er mjög merki-
leg líking um manninn og borgina. Óvinir áttu greiðan inngang
í borg, þegar múrveggir hennar höfðu verið brotnir niður. Við
lesum í Efesusbréfi 5.26., 27.: „Ef þér reiðist, þá syndgið ekki.
Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar, og gefið djöflinum ekkert
færi.“ Menn hafa oft í bræðikasti talað orð, sem þeir og aðrir
hafa mátt lengi gjalda síðar. Múralaus borg var auðunnin borg,
nánast sagt varnarlaus. Þannig var ástatt með Jerúsalem eftir
fyrri herleiðingu þjóðarinnar. Og það leið langur tími frá því,
að fyrstu leifarnar sneru heim aftur, áður en Nehemía kom til
sögunnar og endurreisti múra Jerúsalem. Guði sé lof, að Drott-
inn Jesús var sendur til að byggja þá upp aftur, sem brotnir hafa
verið niður. Hann getur gefið nýtt hugrekki til að mæta alls
konar erfiðleikum, nýjan dug til að standast í krafti hans árásir
voldugra óvina. Hann getur reist þann varnarmúr trausts um
huga og hjarta, að rætist orðið: „Eigi þarft þú að óttast ógnir
næturinnar, eða örina, sem flýgur um daga, drepsóttina, er reik-
ar um í dimmunni, eða sýkinga, er geisar um hádegið." (Sálm.
91. 5., 6.). ÖH hin eldlegu skeyti Satans vinna honum ekki mein,
af því að hann treystir Drottni. Sbr. Efes. 6.16.: „Taldð ofan
á allt þetta skjöld trúarinnar, sem þér getið slökkt með öll hin
eldlegu skeyti hins vonda.“
3. Herteknir menn.
Drottinn kom til að boða „herteknum frelsi“. Hér yrði of-
langt mál að rekja allar þær frásagnir, sem biblían geymir um
hertekið fólk. Oftast mun það ekki hafa átt afturkvæmt til
föðurlandsins. Sem þrælar og ambáttir varð það að þjóna
óvinum sínum. En hertekna fólkið eru myndir af þeim, sem alls
konar ástríður eða áfengið eða fíknilyf hafa lagt í fjötra og leitt
til ánauðar, ævilangrar, nema lausnarmaður komi, sem kaupi
því lausn úr ánauðinni. Guði sé lof, að boðskapur heilagrar
ritningar um Drottin Jesúm Krist flytur herteknum þann gleði-
lega boðskap, að þeir geti aftur orðið frjálsir úr ánauð sinni.
Þó víkur þessi boðskapur líka að lausn þeirra, sem dauðinn hafði
lagt í fjötra sína. Dauðinn drottnaði yfir mönnunum, þeir voru
í ánauð hans, af því „laun syndarinnar er dauði“. En daginn
þann, sem Drottinn Jesús dó á krossinum á Golgata og hrópaði
þar sitt ,,Tetelestaj“. „Það er fullkomnað!” þá risu margir lílcam-